16 elskendur furmsýna Sýningu ársins
Sunnudaginn 4. mars næstkomandi, frumsýnir Sviðslistahópurinn 16 elskendur stórvirkið Sýningu ársins, sviðslistaviðburð fyrir alla Íslendinga. Eins og titillinn gefur til kynna er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur en í sýningunni leitast hópurinn við að koma til móts við „leikhúsþarfir Íslendinga.“ Í því skyni hefur leikhópurinn látið gera skoðanakönnun á því hvað Íslendingar vilja sjá á sviði. Til að niðurstaðan væri sem vísindalegust gekk hópurinn til samstarfs við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sem framkvæmdi könnunina með 1400 manna úrtaki. Sýningin er unnin beint upp úr niðurstöðum rannsóknarinnar. Hvað vilja Íslendingar sjá í leikhúsi? Hvað vilt þú sjá í...
Read More


