Leiklistarskóli Bandalagsins 2012
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga 2012 Skráning í skólann stendur yfir frá 15. mars til 15. apríl nema á Trúðanámskeiðið, þar verður opið fyrir skráningar til 30. apríl. Reglan „fyrstur kemur – fyrstur fær“ gildir við skráningar gegn greiðslu staðfestingargjalds, kr. 35.000 ef inntökuskilyrðum er fullnægt að öðru leyti. Náist ekki ásættanlegur fjöldi á eitthvert námskeiðanna fellur það niður. Aldurstakmark í skólann er 18 ár. Skólinn hefur sett sér reglur, m.a. um umgengni, reykingar og áfengisneyslu, sem nemendur samþykkja að fara eftir á starfstíma skólans. Umsókn má senda á netfangið info@leiklist.is og leggja staðfestingargjaldið inn á reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239...
Read More


