Author: lensherra

Súldarsker til Akureyrar

Í samstarfi við Leikfélag Akureyrar verður leikverkið Súldarsker eftir Sölku Guðmundsdóttur sýnt í Rýminu á Akureyri 16. og 17. mars næstkomandi. Þessi bráðskemmtilega sýning sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd í fyrra og hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda. Meðal annars var sýningin tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna. Í kjölfarið verður Súldarsker einnig sýnt nokkrum sinnum í Tjarnarbíói en sýningin hætti þar fyrir fullu húsi í fyrra. Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin...

Read More

Sá glataði aftur á fjalirnar hjá Hugleik

Hugleikur sýnir á ný leikritið Sá glataði eftir tveggja vikna hlé. Handritið er eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur en hún vann það í samvinnu við leikstjórann Ágústu Skúladóttur og leikhópinn. Tónlist og söngtexta í verkinu samdi Þorgeir Tryggvason. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Að þessu sinni fæst Hugleikur við eitt af grundvallarritum vestrænnar menningar, sjálfa Biblíuna. Megin efniviðurinn eru dæmisögur Jesú í Nýja Testamentinu, bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann en einnig aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga og kallast þannig með áþreifanlegum hætti á við samtímann. Ágústa sér um að þræða...

Read More

Sýningar á Gálmu hefjast á ný 13. mars

Í október síðastliðinn sýndi leikhópurinn Sómi þjóðar, í samstarfi við Norðurpólinn, nýja íslenska leikverkið Gálma. Vegna anna leikara voru sýningar á verkinu fáar (Hilmir Jensson hóf á þessum tímapunkti atlögu að Íslandsmeti í fjölda búningaskipta í einni sýningu í Vesalingunum, Bjartur Guðmundsson hvarf inn í söngleikja-paradísina í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, og Tryggvi Gunnarsson fékk olíupeninga til að setja upp mjög svo óhefðbundna danssýningu í Þrándheimi). Pláss var fyrir 40 manns á hverja sýningu á Gálmu, en á lokasýningu var setið í hverju sæti og staðið í hverju horni. 110 manns sáu þessa lokasýningu, en fjöldi þurfti því miður frá...

Read More

Í gegnum tíðina – frumsýning hjá Umf. Eflingu

Á undanförnum vikum hefur Leikdeild Eflingar í Reykjadal í Þingeyjarsveit æft nýtt íslenskt verk ‚ eftir Hörð Þór Benónýsson. Verkið heitir Í gegnum tíðina og er gamanleikrit með söngvum, þar sem sögð er saga íslenskrar bændafjölskyldu á seinni hluta síðustu aldar c.a. 1950 – 1980. Fjölskyldumeðlimir lenda í hinum ýmsu aðstæðum, fara á síld, lenda í Kananum, upplifa bítlaæðið, fara á bændahátíð o. fl. Í verkinu kemur fyrir mikill fjöldi persóna, sem meðal annars helgast af því, að leikritið var skrifað með þennan leikhóp í huga og haft að leiðarljósi að allir fengju að spreyta sig. Inn í söguna...

Read More

Leiklistarskóli Bandalagsins sumarið 2012

Þá er komið að því að kynna námskeiðin sem haldin verða á þessu sextánda starfsári Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga. Skólinn verður settur þann 9. júní 2012 að Húnavöllum í Húnavatnshreppi þar sem sumarskólinn hefur starfað undanfarin tvö ár. Í sumar verða þrjú námskeið í boði. Leiklist I – grunnnámskeið í leiklist, kennari Árni Pétur Guðjónsson, Leikstjórn III – sérnámskeið fyrir leikstjóra, kennari  Sigrún Valbergsdóttir sem fylgja mun eftir velheppnuðum leikstjórnarnámskeiðum síðastliðinna tveggja ára. Og þriðja námskeiðið er Trúðleikur – sérnámskeið fyrir reyndari leikara, kennari Ágústu Skúladóttir. Eins og áður verður höfundum boðið að dvelja að Húnavöllum við skapandi skrif....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert