Author: lensherra

Sá glataði sýndur á aukasýningu

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu á Þeim glataða. Hún verður  sunnudaginn 25. mars kl. 20. Sá glataði nefnist nýtt íslenskt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, leikstjóra og leikhópinn í leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem Hugleikur frumsýndi í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9 í seinasta mánuði. Að þessu sinni fæst Hugleikur við eitt af grundvallarritum vestrænnar menningar, sjálfa Biblíuna. Megin efniviðurinn eru dæmisögur Jesú í Nýja Testamentinu, bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann en einnig aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga og kallast þannig með áþreifanlegum hætti á við samtímann. Ágústa...

Read More

Enginn með Steindóri á Hofsósi

Eftir stranga æfingatörn undanfarnar vikur frumsýnir Leikfélag Hofsóss nú í kvöld gamanleikinn Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Þetta er fyrsta og enn sem komið er, eina leikrit Nínu Bjarkar í fullri lengd en hún hefur skrifað nokkra  styttri þætti fyrir leiksvið. Leikarar eru 9 talsins en auk þess kemur fjöldi aðstoðarmanna að sýningunni. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um fjölskyldu bankastjórans Kristjáns Húnboga og Sigríðar Ingibjargar, konu hans, sem rekur „vel þekkt“ listagallerí. Þau hafa boðið tilvonandi tengdafjölskyldu yngri dótturinnar í heimsókn og valda gestirnir talsverðu uppnámi á heimilinu þar sem þau tilheyra...

Read More

Andlát við jarðarför í Mosfellsbæ

Föstudaginn 16. mars verður leikritið Andlát við jarðarför frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikritið er byggt á bresku kvikmyndinni Death at a funeral eftir Dean Craig og leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir. María Guðmundsdóttir ásamt Guðnýju Maríu sáu um handritsvinnu. Eva Björg Harðardóttir hannar leikmynd og búninga og Hörður Guðjónsson lýsingu. Leikritið fjallar um fjölskyldu sem hittist í jarðarför fjölskylduföðurins. Eldri bróðirinn, sem enn býr hjá foreldrum sínum ásamt konu sinni, tekur að sér  að skipuleggja jarðarförina og flytja minningarorðin. Það sem upphaflega virtist vera tiltölulega einfalt verkefni verður honum hins vegar fjötur um fót þegar alls kyns óvæntar uppákomur...

Read More

La Bohème frumsýnd í Eldborg

Hið ódauðlega meistaraverk, óperan La Bohème eftir Puccini, verður frumsýnd föstudaginn 16. mars kl. 20 í Eldborg í Hörpu. Hér er um að ræða aðra sýningu Íslensku óperunnar í hinum nýju húsakynnum, en skemmst er að minnast fyrstu uppsetningarinnar, Töfraflautunnar, sem 13.000 manns sáu síðastliðið haust. Nú er komið að meistaraverki Puccini um bóhemana í París, umfangsmikill og fjölmennri sýningu sem krefst mikils af öllum þeim listrænu kröftum sem að henni standa. Þessi hrífandi ópera þykir ein fegursta smíð tónbókmenntanna og er hún jafnan á fjölum helstu óperuhúsa heims. Í La Bohème segir frá hópi listamanna í París í...

Read More

Að eilífu sýnt hjá Leikfélagi Bolungarvíkur

Leikfélag Bolungarvíkur rumskaði á vordögum síðastliðnum eftir 17 ára fastasvefn. Ráðist var í uppsetningu á verkinu „Að eilífu,“ eftir Árna Ibsen, eftir nýjárið og var frumsýning síðastliðinn laugardag. Leikstjóri verksins er Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona, en þetta er hennar fyrsta leikstjórnarverkefni. Hún réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur í þessari fyrstu uppsetningu sinni því að meðal leikendanna sem eru hátt í 20, voru einungis 3 – 4 sem höfðu nokkuð rykfallna reynslu í sviðsleik. Góður rómur var gerður að frumsýningunni og þótti fólkinu vestra þessi uppsetning takast með eindæmum vel, auk þess sem verið var að bjóða...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert