Author: lensherra

Andlát við jarðarför í Mosfellsbæ

Föstudaginn 16. mars verður leikritið Andlát við jarðarför frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikritið er byggt á bresku kvikmyndinni Death at a funeral eftir Dean Craig og leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir. María Guðmundsdóttir ásamt Guðnýju Maríu sáu um handritsvinnu. Eva Björg Harðardóttir hannar leikmynd og búninga og Hörður Guðjónsson lýsingu. Leikritið fjallar um fjölskyldu sem hittist í jarðarför fjölskylduföðurins. Eldri bróðirinn, sem enn býr hjá foreldrum sínum ásamt konu sinni, tekur að sér  að skipuleggja jarðarförina og flytja minningarorðin. Það sem upphaflega virtist vera tiltölulega einfalt verkefni verður honum hins vegar fjötur um fót þegar alls kyns óvæntar uppákomur...

Read More

La Bohème frumsýnd í Eldborg

Hið ódauðlega meistaraverk, óperan La Bohème eftir Puccini, verður frumsýnd föstudaginn 16. mars kl. 20 í Eldborg í Hörpu. Hér er um að ræða aðra sýningu Íslensku óperunnar í hinum nýju húsakynnum, en skemmst er að minnast fyrstu uppsetningarinnar, Töfraflautunnar, sem 13.000 manns sáu síðastliðið haust. Nú er komið að meistaraverki Puccini um bóhemana í París, umfangsmikill og fjölmennri sýningu sem krefst mikils af öllum þeim listrænu kröftum sem að henni standa. Þessi hrífandi ópera þykir ein fegursta smíð tónbókmenntanna og er hún jafnan á fjölum helstu óperuhúsa heims. Í La Bohème segir frá hópi listamanna í París í...

Read More

Að eilífu sýnt hjá Leikfélagi Bolungarvíkur

Leikfélag Bolungarvíkur rumskaði á vordögum síðastliðnum eftir 17 ára fastasvefn. Ráðist var í uppsetningu á verkinu „Að eilífu,“ eftir Árna Ibsen, eftir nýjárið og var frumsýning síðastliðinn laugardag. Leikstjóri verksins er Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona, en þetta er hennar fyrsta leikstjórnarverkefni. Hún réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur í þessari fyrstu uppsetningu sinni því að meðal leikendanna sem eru hátt í 20, voru einungis 3 – 4 sem höfðu nokkuð rykfallna reynslu í sviðsleik. Góður rómur var gerður að frumsýningunni og þótti fólkinu vestra þessi uppsetning takast með eindæmum vel, auk þess sem verið var að bjóða...

Read More

Súldarsker til Akureyrar

Í samstarfi við Leikfélag Akureyrar verður leikverkið Súldarsker eftir Sölku Guðmundsdóttur sýnt í Rýminu á Akureyri 16. og 17. mars næstkomandi. Þessi bráðskemmtilega sýning sló rækilega í gegn þegar hún var frumsýnd í fyrra og hlaut mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda. Meðal annars var sýningin tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna. Í kjölfarið verður Súldarsker einnig sýnt nokkrum sinnum í Tjarnarbíói en sýningin hætti þar fyrir fullu húsi í fyrra. Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin...

Read More

Sá glataði aftur á fjalirnar hjá Hugleik

Hugleikur sýnir á ný leikritið Sá glataði eftir tveggja vikna hlé. Handritið er eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur en hún vann það í samvinnu við leikstjórann Ágústu Skúladóttur og leikhópinn. Tónlist og söngtexta í verkinu samdi Þorgeir Tryggvason. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Að þessu sinni fæst Hugleikur við eitt af grundvallarritum vestrænnar menningar, sjálfa Biblíuna. Megin efniviðurinn eru dæmisögur Jesú í Nýja Testamentinu, bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann en einnig aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga og kallast þannig með áþreifanlegum hætti á við samtímann. Ágústa sér um að þræða...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert