Author: lensherra

Tengdó leiksýning ársins á Grímunni 2012

Grímuverðlaunin voru afhent í tíunda sinn fyrr í kvöld, við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpunni. Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hefur veg og vanda að Grímuverðlaununum. Veitt voru verðlaun í 18 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna veitt þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista. Alls komu 89 sviðslistaverkefni til álita til Grímunnar í ár sem voru skoðuð af fagnefndum Grímunnar með verðlaunin eftirsóttu í huga. Þar af voru 23 danssýningar, 9 barnasýningar og 7 útvarpsverk. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. Tengdó...

Read More

Bernd Ogrodnik fær alþjóðlega viðurkenningu

Bernd Ogrodnik brúðulistamaður fékk nýverið úthlutað viðurkenningu Michael Meschke sem eru alþjóðleg verðlaun á sviði brúðuleiklistar. Verðlaunaféð eru 5.000 Evrur. Bernd hlýtur viðurkenninguna fyrir að vera fyrirmynd fyrir nýjar kynslóðir þegar kemur að hæstu gæðum í handverki samþáttað við framþróun og endurnýjun á tækni og hönnun, til að ná fram aukinni hreyfilist hjá leikbrúðunum. Michael Meschke hefur verið leiðandi nafn í heimi brúðuleiklistar í yfir 60 ár og haft mikil áhrif á þetta listform á alþjóðavísu. Bernd sýnir nú sitt nýjasta sköpunarverk á sviði Þjóðleikhússins í Kúlunni en það er sýning byggð á hinu mikla bókmenntaverki “Gamli maðurinn og...

Read More

Leikdagskrá og aðalfundur

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikdagskrá í Leikhúsinu Funalind 2 annað kvöld, föstudag kl. 18.00. Hópurinn hefur unnið undir stjórn Kristínar Rósar Birgisdóttur undanfarnar vikur og verður afraksturinn, fjórir leikþættir, sýndur á morgun. Félagsmenn LK og aðrir áhugasamir geta tekið forskot á sæluna í kvöld kl. þegar hópurinn verður með opna æfingu kl. 19.00. Að æfingunni lokinni kl. 20.00 fer fram aðalfundur Leikfelags...

Read More

Hringurinn í Þjóðleikhúsinu 22. júní

Sýning Leikfélags Kópavogs, Hringurinn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Félaginu var í kjölfarið boðið að sýna Hringinn í Þjóðleikhúsinu og verður hún föstudaginn 22. júní kl. 20.00 í Kassanum. Miðasala á sýninguna er á vegum Þjóðleikhússins. Sími miðasölunnar er 551 1200, netfangið er midasala@leikhusid.is. Nánari upplýsingar má fá á vef Þjóðleikhússins. {mos_fb_discuss:2}...

Read More

Tilnefningar til Grímuverðlauna 2012

Tilnefningar til Grímuverðlauna 2012 í alls 18 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Tjarnarbíói föstudaginn 1. júní að viðstöddum fjölda sviðslistafólks. Alls komu 89 sviðslistaverkefni til álita til Grímunnar í ár sem voru skoðuð af fagnefndum Grímunnar með verðlaunin eftirsóttu í huga. Þar af voru 23 danssýningar, 9 barnasýningar og 7 útvarpsverk. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. Grímuhátíðin sjálf, árleg uppskeruhátíð sviðslistageirans árið 2012, verður svo haldin í tíunda sinn í Hörpu fimmtudaginn 14. júní. Kynning á hátíðinni verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og daginn eftir sýndur vandaður þáttur um hátíðina. Stjórnandi hátíðarinnar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert