Author: lensherra

Leikdagskrá og aðalfundur

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir leikdagskrá í Leikhúsinu Funalind 2 annað kvöld, föstudag kl. 18.00. Hópurinn hefur unnið undir stjórn Kristínar Rósar Birgisdóttur undanfarnar vikur og verður afraksturinn, fjórir leikþættir, sýndur á morgun. Félagsmenn LK og aðrir áhugasamir geta tekið forskot á sæluna í kvöld kl. þegar hópurinn verður með opna æfingu kl. 19.00. Að æfingunni lokinni kl. 20.00 fer fram aðalfundur Leikfelags...

Read More

Hringurinn í Þjóðleikhúsinu 22. júní

Sýning Leikfélags Kópavogs, Hringurinn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af valnefnd Þjóðleikhússins. Félaginu var í kjölfarið boðið að sýna Hringinn í Þjóðleikhúsinu og verður hún föstudaginn 22. júní kl. 20.00 í Kassanum. Miðasala á sýninguna er á vegum Þjóðleikhússins. Sími miðasölunnar er 551 1200, netfangið er midasala@leikhusid.is. Nánari upplýsingar má fá á vef Þjóðleikhússins. {mos_fb_discuss:2}...

Read More

Tilnefningar til Grímuverðlauna 2012

Tilnefningar til Grímuverðlauna 2012 í alls 18 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Tjarnarbíói föstudaginn 1. júní að viðstöddum fjölda sviðslistafólks. Alls komu 89 sviðslistaverkefni til álita til Grímunnar í ár sem voru skoðuð af fagnefndum Grímunnar með verðlaunin eftirsóttu í huga. Þar af voru 23 danssýningar, 9 barnasýningar og 7 útvarpsverk. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. Grímuhátíðin sjálf, árleg uppskeruhátíð sviðslistageirans árið 2012, verður svo haldin í tíunda sinn í Hörpu fimmtudaginn 14. júní. Kynning á hátíðinni verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og daginn eftir sýndur vandaður þáttur um hátíðina. Stjórnandi hátíðarinnar...

Read More

Frumsýning á Trúðleik í Frystiklefanum í Rifi

Leikritið Trúðleikur eftir Hallgrím H. Helgason verður frumsýnt í Frystiklefanum í Rifi þann 1. júní næstkomandi. Trúðleikur er sprellfjörugur og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla í fjölskyldunni. Leikritið er nú sett upp í fyrsta sinn síðan það sló rækilega í gegn í Iðnó um aldamótin síðustu. Trúðleikur er þriðja uppfærsla Frystiklefans í Rifi og fylgir á eftir einleiknum Hetju og karókísplatternum Góðir hálsar sem báðar hlutu frábæra dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda á sínum tíma. Leikritið fjallar um trúðana tvo Skúla og Spæla sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur...

Read More

Tvennir tímar í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ

Laugardaginn 2. júní kl 17:30 og 19:00 sýnir leiklistarhópur 9. og 10. bekkjar Lágafells- og Varmárskóla kynnir leikritið Tvennir tímar í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ. Leikritið gerist í Mosfellssveit/bæ árin 1962 og 2012. Bára kennari á stórafmæli og gamlir nemendur samfagna henni á þessum tímamótum. Hún rifjar upp ball í Hlégarði þar sem hún kynntist ástinni sinni og við sögu koma einnig týndur faðir, afturgengin hjúkrunarkona frá Bandaríkjunum, sveitasíminn og handritastuldur á Gljúfrasteini! Leikstjóri og höfundur ásamt leikhópnum er María Pálsdóttir en aðstoð við tónlist veitti Óskar Einarsson Aðgangseyrir 500 kr en frítt fyrir krakka í 6. bekk og yngri í...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert