Frumsýning á Trúðleik í Frystiklefanum í Rifi
Leikritið Trúðleikur eftir Hallgrím H. Helgason verður frumsýnt í Frystiklefanum í Rifi þann 1. júní næstkomandi. Trúðleikur er sprellfjörugur og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla í fjölskyldunni. Leikritið er nú sett upp í fyrsta sinn síðan það sló rækilega í gegn í Iðnó um aldamótin síðustu. Trúðleikur er þriðja uppfærsla Frystiklefans í Rifi og fylgir á eftir einleiknum Hetju og karókísplatternum Góðir hálsar sem báðar hlutu frábæra dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda á sínum tíma. Leikritið fjallar um trúðana tvo Skúla og Spæla sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur...
Read More


