Author: lensherra

Síðustu sýningar á FASTUR í Norðurpólnum

Leiksýningin FASTUR hefur verið sýnd í Norðurpólnum síðan 17. maí. Nú fer sýningum að ljúka og eru einungis tvær sýningar eftir. Önnur er fimmtudaginn 28. júní og sú síðasta fimmtudaginn 5. júlí. Báðar sýningarnar hefjast kl. 20. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og góða dóma en hér má sjá nokkur orð gagnrýnenda: Benedikt Karl er menntaður trúður og sýndi dásamlega tækni í sýningunni – jafnvel svo að maður greip andann á lofti eða greip í fáti í næsta mann þegar mest gekk á. Hann vakti líka vissulega hlátur, jafnvel dillandi hlátur, en það besta við sýninguna var samt...

Read More

Aukasýning á Dagur til að drepa sig

Þriðjudaginn 3. júlí kl. 20.00 verður aukasýning á leikþættinum Dagur til að drepa sig eftir Jón Benjamín Einarsson. Það er Leikfélagið Peðið sem sýnir og er verkið í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Sýnt er á bar 46 Hverfisgötu 46. Það er enginn til frásagnar um það hvenær sá dagur kemur sem gott er að drepa sig. Eitt er víst, að dagurinn sem Jóhannes velur er ekki góður. En hvernig átti hann að vita það þegar hann ákvað að stökkva fram af hengifluginu. Maður getur bara aldrei verið viss um neitt. Ekki einu sinni að yfirvofandi sjálfsmorð, verði ekki að einhverju...

Read More

Act alone og Vesturport bindast vináttuböndum

Á dögunum gerði Act alone einleikið vinasamband við hinn einstaka leikhóp Vesturport. Samstarfið felur í sér að Vesturport mun leitast við að gera Act alone að enn betri hátíð. Nú þegar hefur vinasambandið borið ávöxt því á Act alone 2013 mun Vesturport frumsýna nýjan íslenskan einleik. Of snemmt er að segja frá verkinu en þó má nefna að verkið tengist hinum gjöfula Íslendingasagnaarfi. Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa Act alone, Ársæl Níelsson, innsigla vináttusambandið við Vesturport. Undirbúningur fyrir Act alone leiklistarhátíðina á Suðureyri er nú í blússandi gangi. Hátíðin verður haldin dagana 9. – 12. ágúst og verður...

Read More

Hernámsdagurinn á Reyðarfirði

Hinn árlegi Hernámsdagur verður haldinn á Reyðarfirði helgina 29. júní til 1. júlí. Leikfélag Reyðarfjarðar mun taka virkan þátt í ár eins og áður en að þessu sinni verður boðið upp á gönguferð um Búðareyri þar sem félagar í Leikfélaginu munu endurskapa andblæ stríðsáranna. Fer gangan fram á milli kl. 14 og 15 þann 30. júní. Lagt verður upp frá Bræðsluhúsinu á Reyðarfirði og er hún þátttakendum að kostnaðarlausu. Sunnudaginn 1. júní , á Hernámsdaginn sjálfan, stendur Leikfélag Reyðarfjarðar í samstarfi við sönghópinn Fjarðadætur síðan fyrir kvöldvöku í Félagslundi á Reyðarfirði. Fer þar fram skemmtidagskrá í anda stríðsáranna með tilheyrandi,...

Read More

Leikfélagið Peðið frumsýnir Dagur til að drepa sig

Leikfélagið Peðið sýnir leikþáttinn Dagur til að drepa sig, eftir Jón Benjamín Einarsson í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar laugardaginn 23. júní kl. 19:00. Önnur sýning verður sunnudaginn 24. júní kl. 17:00 í tilefni sólstöðuhátíðar á bar 46 Hverfisgötu 46. Það er enginn til frásagnar um það hvenær sá dagur kemur sem gott er að drepa sig. Eitt er víst, að dagurinn sem Jóhannes velur er ekki góður. En hvernig átti hann að vita það þegar hann ákvað að stökkva fram af hengifluginu. Maður getur bara aldrei verið viss um neitt. Ekki einu sinni að yfirvofandi sjálfsmorð, verði ekki að einhverju...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert