Author: lensherra

Rautt frumsýnt á Litla sviðinu

Margverðlaunað meistaraverk John Logan verður frumsýnt á Litla sviðinu 21. september næstkomandi. Rauður er gríðarlega vel skrifað verk með sterkum persónum en varpar um leið upp sígildum spurningum um lífið og listina. Verkið var sýnt á West end og Broadway við fádæma undirtektir þar sem leikararnir Alfred Molina og nýstirnið Eddie Redmayne fóru með hlutverk Rothko og aðstoðarmanns hans, Ken. Guðrún Vilmundardóttir þýddi Rautt, Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir, Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónssons fara með hlutverk Rothko og Ken. Rautt er leikrit um einn áhrifamesta listamann tuttugustu aldarinnar, Mark Rothko, baráttu hans við sjálfan sig – eða öllu heldur við...

Read More

Æfingar hafnar á Rummungi ræningja

Leikfélag Ölfuss æfir nú fjölskyldu leikritið Rummungur ræningja eftir þýska barnabókahöfundinn og leikskáldið Otfried Preussler. Þetta er ævintýri eins og þau gerast best og koma við sögu máttug galdranorn, talandi froskur, spilandi kaffikvörn, sex fötur af kartöflum og svo auðvitað sjálfur Rummungur, grimmastur og ógurlegastur allra ræningja í Ræningjaskógi. Frumsýnt verður um miðjan október, leikstjóri og þýðandi verksins er Ármann Guðmundsson. Kaspar og Sæli ákveða að gleðja ömmu sína með því að gefa henni kaffikvörn sem spilar uppáhaldslagið hennar í afmælisgjöf. Þeir eru þó ekki fyrr búnir að því en hinn ógurlegi Rummungur ræningi birtist og rænir kaffikvörninni af...

Read More

Dúnn frumsýnt í Tjarnarbíói

Föstudaginn 14. september verður Dúnn frumsýndur í Tjarnarbíói. Dúnn er dansverk, gjörningur, tónverk, ljósverk og leikrit. Dúnn er sjónarspil. Höfundar og flytjendur eru Ásrún Magnúsdóttir og Berglind Pétursdóttir Umfjöllunarefnið stendur okkur mjög nærri en við ákváðum að þessu sinni að fjalla um tilvist mannsins og sólarinnar. Þetta tvennt tengist traustum böndum, þegar við byrjuðum að fjalla um tilvistina gátum við ekki látið sólina óafskipta. Tilvistarstefnunni helguðum við sjö daga af lífi okkar. Síðan byrjuðum við að misnota hana. Sólin fékk 20 mínútur en við vissum líka í grunninn hvað hún snýst um. Þegar maður er að fjalla um stór málefni...

Read More

Pörupiltar í Hofi

Homo Erectus – Pörupiltar, standa upp í Menningarhúsinu Hofi 22. september. Leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir frumsýndu fyrir ári síðan uppistandið Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum. Kvöldið bar yfirskriftina Uppnám, fyrir hlé var uppistandið en eftir hlé tók við söngleikjadúettinn Viggó og Víóletta. Þetta uppistand var sérstakt að því leyti að leikkonurnar voru í karlmannshlutverkum. Nonni Bö, Hermann Gunnarsson og Dóri Maack voru uppistandararnir.  Þeir fóru yfir það helsta sem þeim lá á hjarta og óhætt að fullyrða að áhorfendur hafi kunnað að meta það. Þeir töluðu um heimspeki, hreingerningar, gríska goðafræði, konur,...

Read More

Ungleikur í Borgarleikhúsinu

Ungleikur var stofnaður í þeim tilgangi að gefa ungum skáldum og leikurum vetvang til þess að sýna vinnu sína. Meginmarkiðið er að efla leikritun og leiklist ungra Reykvíkinga og tekið er við innsendum leikritum frá ungum skáldum (16-25 ára) sem verða sett upp sem sýning í Borgarleikhúsinu þann 6. nóvember næstkomandi. Umsóknarfrestur leikskálda er til 15. september. Leikritin þurfa að vera 8-15 blaðsíður að lengd. Sendið leikritin á netfangið ungleikur@gmail.com Áheyrnaprufur fyrir leikarana verða auglýstar þegar nær dregur. Ungleikur verður nýr og spennandi dagskráliður á Unglist í Reykjavík. Skúffuskáld Reykjavikur sameinist! Fylgist með á Facebook síðu Ungleik:...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert