Author: lensherra

Sköllótta söngkonan í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir þann 29. september hinn óviðjafnanlega, fyndna, skrítna og brjálæðislega gamanleik rúmenska/franska leikskáldsins, Eugene Ionesco, Sköllóttu Söngkonuna í Gaflaraleikhúsinu. Frá því að verkið var fyrst frumsýnt í London fyrir 50 árum hefur það farið sigurför um heiminn og komið ólíklegasta fólki til að hlæja. Leikstjórar verksins eru Halldór Magnússon og Gísli Björn Heimisson. Miðapantanir eru í síma 565 5900 og á midasala@gaflaraleikhusid.is. Miðasalan er opin frá 15.00-18.00 alla virka daga og tveimur tímum fyrir...

Read More

Námskeið í gerð kvikmyndahandrita

Í október stendur Endurmenntun HÍ fyrir námskeiði í gerð kvikmyndahandrita. Þar er nemendum kennt að vinna hugmyndir sínar og þróa þær í áttina að kvikmyndahandriti með sérstaka áherslu á dramatíska uppbyggingu. Námskeiðið, sem hefur hlotið mikið lof fyrri þátttakenda, er ætlað bæði þeim sem hafa reynslu af kvikmyndagerð og þeim sem eru reynslulausir á því sviði. Kennarar eru Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, BA í almennri bókmenntafræði frá HÍ og MFA í handritsgerð og kvikmyndaleikstjórn frá Columbia University og Árni Ólafur Ásgeirsson, MA í kvikmyndaleikstjórn frá Polish National Film School. – Þú lærir að beita helstu tólum og tækjum í handritsgerð...

Read More

Afmælisveislan á Akureyri

Afmælisveislan eftir Harold Pinter í leikstjórn Guðjóns Pedersen er á leiðinni norður og verður sýnd á sviði Samkomuhússins föstudagskvöldið 27. og laugardagskvöldið 28. september kl. 20:00, einnig á sunnudaginn 29. september kl. 16:00. Þessi sýning Þjóðleikhússins skartar landsliðsleikurunum Ingvari E. Sigurðssyni, Kristbjörgu Kjeld, Erlingi Gíslasyni, Birni Thors, Eggerti Þorleifssyni og Þórunni Örnu Kristjánsdóttur. Sýningin hlaut 7 tilnefningar til Grímunnar s.l vor og hreppti þrenn verðlaun. Örfáir miðar eru lausir. Stanley er fremur framtakslaus ungur maður, sem virðist áður hafa unnið fyrir sér sem píanóleikari. Hann dvelur á niðurníddu gistihúsi í litlum bæ við sjávarsíðuna í Bretlandi og er dekraður...

Read More

Æfingar hafnar á Il Trovatore í Hörpu

Æfingar eru hafnar af fullum krafti á haustuppfærslu Íslensku óperunnar, Il Trovatore eftir Giuseppe Verdi, en þetta er í fyrsta sinn sem ópera hins ítalska meistara er færð upp í tónlistarhúsinu Hörpu. Nokkrir framúrskarandi listamenn á sviði tónlistar og leikhúss sameina krafta sína í uppfærslunni nú, bæði innlendir og erlendir. Kemur hljómsveitarstjórinn, Carol I. Crawford, til að mynda frá Bandaríkjunum og mun þetta vera í fyrsta sinn sem kona er hljómsveitarstjóri í óperuuppfærslu hjá Íslensku óperunni. Þá syngur baritónsöngvarinn Anooshah Golesorki hlutverk Luna greifa á þremur sýningum, en hann deilir hlutverkinu með einum fremsta óperusöngvara okkar Íslendinga, Tómasi Tómassyni,...

Read More

Á sama tíma að ári frumsýnt 28. september

Gamanleikurinn Á sama tíma að ári verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn, 28. september. Verkið sem var frumflutt í New York 1975, hefur notið mikilla vinsælda um allan heim og unnið til fjölda verðlauna (þ.á.m. Drama desk verðlaunin sem besta leikrit ársins) sem og kvikmyndin sem gerð var eftir leikritinu (tilnefnd til 4 Óskarsverðlauna). Karl Ágúst Úlfsson þýddi verkið,  Sigurður Sigurjónssons og Bjarni Haukur Þórsson leikstýra Nínu Dögg Filippusdóttur og Guðjóni Davíð Karlssyni í þessu verki Bernards Slade. Eitt febrúarkvöld árið 1951 hittast George og Doris fyrir tilviljun á hóteli og verja nóttinni saman. Þetta kvöld kviknar neistinn....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert