Author: lensherra

Il Trovatore frumsýnd 20. október

Ein vinsælasta ópera meistara Giuseppe Verdi, Il Trovatore eftir Giuseppi Verdi, verður frumsýnd í Eldborg í Hörpu þann 20. október næstkomandi. Óperan er eitt vinsælasta verk þessa ítalska meistara, en ópera eftir hann er nú flutt í fyrsta sinn í tónlistarhúsinu Hörpu. Il Trovatore hefur einu sinni verið sett upp áður í Íslensku óperunni, árið 1986, og er hún mörgum eflaust enn í fersku minni, en á tólfta þúsund manns sáu sýninguna. Núna er um að ræða áhrifamikla uppfærslu á þessu mikla meistaraverki óperubókmenntanna, þar sem nútíminn mætir fornri sögu um ástir og hefnd. Dramatíkin er í forgrunni í...

Read More

Hringurinn á Interampa

Á fimmtudag heldur Leikfélag Kópavogs í víking til Litháen með sýninguna Hringinn. Félagið tekur þar þátt í Interampa leiklistarhátíðinni sem nú er haldin í 18. sinn. Auk Hringsins verða á hátíðinni sýningar frá Litháen, Hollandi, Armeníu, Rússlandi og Póllandi. Miðvikudag 17. okt. kl. 20.00 verður opið rennsli á Hringnum í Leikhúsinu í Kópavogi. Vinir og velunnarar eru velkomnir svo fremi sem þeir tilkynna komu í lk@kopleik.is. Hringurinn var valinn Athyglisverðasta áhugaleiksýning síðasta leikárs og var í kjölfarið boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu í júní síðastliðinn. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd...

Read More

Lífið í landinu – þjóðarsögur á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk miðvikudaginn 24. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk Lífið í landinu – þjóðarsögur. Höfundar eru Arnar Símonarson, sem jafnframt leikstýrir, og leikhópurinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta áttunda árið sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. Arnar segir að verkið sé unnið út frá skapandi hugmyndavinnu. Nemendur vinna eftir handriti sem er í stöðugri endurskoðun og tillögur þeirra eru teknar til greina um útfærslur og breytingar, ef þurfa þykir. Verkið fjallar um okkur sem þjóð,...

Read More

Æfingar hafnar á jólaleikriti Borgarbarna

Jólaleikrit Borgarbarna þessi jól ber nafnið Jólaævintýrið og er eftir Erlu Ruth Harðardóttur sem jafnframt leikstýrir. Er þetta sjöunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu og hafa þær allar notið mikilla vinsælda. Verkið verður frumsýnt í Iðnó 1. desember og sýnt í desember. Að þessu sinni fjallar sýningin um jólaævintýri stúlkna á munaðarleysingjahæli. Þeim áskotnast jólaglerkúla sem er þeim töfrum gædd, að við hvern hristing birtast ýmsar þekktar ævintýrapersónur úr kúlunni. Að vissu leyti skapar þetta spennu og gleði en verra er þó að þær persónur sem birtast, eru ekki allar góðar – frekar en forstöðukona munaðarleysingjahælisins....

Read More

Þegar hjartað malar

Litli leikklúbburinnKötturinn sem fer sýnar eigin leiðirHöfundur: Ólafur Haukur SímonarsonLeikstjóri: Halldóra Björnsdóttir Maður finnur það svo vel í hjartanu þegar eitthvað hefur hrifið mann og líðanin verður ögn betri en venjulega. Fær jafnvel trú á æskuna og framtíð mannkynsins og allt það. Svoleiðis leið manni eiginlega eftir frumsýningu Litla Leikklúbbsins á því ágæta verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Kettinum sem fór sínar eigin leiðir. Köttinn samdi Ólafur eftir að hafa lesið Kipling og manni finnst eins og það hafi verið gráupplagt að semja svona verk upp úr Kettinum sem Halldór Stefánsson rithöfundur þýddi á góða íslensku fyrir margt löngu. Og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert