Lífið í landinu – þjóðarsögur á Dalvík
Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk miðvikudaginn 24. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það verk Lífið í landinu – þjóðarsögur. Höfundar eru Arnar Símonarson, sem jafnframt leikstýrir, og leikhópurinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta áttunda árið sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. Arnar segir að verkið sé unnið út frá skapandi hugmyndavinnu. Nemendur vinna eftir handriti sem er í stöðugri endurskoðun og tillögur þeirra eru teknar til greina um útfærslur og breytingar, ef þurfa þykir. Verkið fjallar um okkur sem þjóð,...
Read More


