Author: lensherra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja leitar eftir góðum leikstjóra til uppsetningar á þekktum söngleik eftir áramót. Starfstími er frá 28. janúar til 31. mars 2013. Leikfélag Vestmannaeyja er áhugaleikfélag sem var nú að hefja 102. starfsár sitt. Félagið býr yfir stóru húsnæði á þrem hæðum þar sem kjöraðstæður eru til sýninga og æfinga auk þess sem búnaður hefur verið mikið endurnýjaður á síðustu árum. Umsóknarfrestur er til 31. október 2012. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á birkir.hognason@gmail.com Allar nánari upplýsingar gefur Birkir Thór Högnason, framkvæmdastjóri í síma 772-1870. Leikfélag...

Read More

Hugleikur í læknisleik

Nei, ekkert dónalegt á ferðinni, og hvorki dr. Gunni né dr. Hook koma við sögu. Utangarðsmenn verða reyndar nefndir til sögunnar, en það er dr. Anton Pavlovitsj Tsékhov sem er heiðursgestur á skurðarborði leikfélagsins Hugleiks að þessu sinni. Höfundar Hugleiks hafa rýnt í hið óviðjafnanlega höfundarverk Tsékhovs á sinn skjálga hátt og afraksturinn verður á boðstólum í höfuðstöðvum félagsins að Eyjarslóð 9 á föstudaginn 12. og sunnudaginn 14. október næstkomandi. Læknisleikir – Tsékhov í hugleikrænni atferlismeðferð er leiksýning sem samanstendur af fimm frumsömdum einþáttungum sem allir sækja innblástur sinn í verk þessa leikritunarjöfurs, auk þess sem einn af einþáttungum...

Read More

…Í leikhúsið skal arka – Leikhúsgaldur fyrir alla fjölskylduna

FreyvangsleikhúsiðSkilaboðaskjóðanHöfundur: Þorvaldur ÞorsteinssonLeikstjóri: Daníel Freyr Jónsson Freyvangsleikhúsið frumsýndi laugardaginn 6. október Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Daníels Freys Jónssonar. Höfundur tónlistar í verkinu er Jóhann G. Jóhannsson en um tónlistarstjórn sáu Sigríður Hulda Arnardóttir og Brynjólfur Brynjólfsson. Júlíus Júlíusson brá sér á sýninguna í Freyvangi og setti saman pistil um upplifunina.   Að mínu mati er eitt af hlutverkum áhugaleikhússins að gefa fólki kost á að taka þátt í gefandi félagsstarfi. Hlutverkin í leikhúsinu eru fjölbreytt hvort sem að þú vilt láta ljós þitt skína á sviðinu eða baksviðs, allt saman skiptir þetta miklu máli til að góður...

Read More

Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Tímaskekkju

Fyrsta kynning vetrarins í Nemendaleikhúsi LHÍ er verkefnið Tímaskekkja eftir nemendur á 3 ári í leikaranámi. Verkefnið er hugleiðing um samskipti og sambönd kynjanna og hafa nemendur unnið að því síðustu sex vikur. Áhersla námskeiðsins hefur verði á vinnu með ólíkar samsetningar og sköpunar aðferðir við gerð leiksýninga, á ferli slíkrar vinnu og síðan vinnu við samsetningu og úrvinnslu efnis. Frumsýnt er föstudaginn 12. október kl. 20:00, sýnt er í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13, gengið inn að aftan. Næstu sýningar:Sunnudaginn 14. októberMánudaginn 15. októberÞriðjudaginn 16. októberMiðvikudaginn 17. októberFimmtudaginn 18. október. Það er ókeypis á allar sýningar Nemendaleikhússins en það þarf...

Read More

Ljósvíkingur í Norðurpólnum

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, í samvinnu við Norðurpólinn, sýnir Ljósvíkingur – Skáldið á Þröm, einlægan og átakanlegan einleik um skáldið Magnús Hj. Magnússon í Norðurpólnum, Seltjarnarnesi. Einleikurinn var sýndur vestur á fjörðum í vor og sumar við gríðarlega góðar undirtektir. Það er Ársæll Níelsson sem túlkar skáldið og Elfar Logi Hannesson leikstýrir. Alþýðuskáldið Magnús Hj. Magnússon lifði engu venjulegu lífi og sjaldan var það neitt dans á rósum. Hann ritaði dagbækur frá unga aldri þar sem hann greinir nákvæmlega frá sorg og gleði í sínu lífi sem og grenir frá ýmsum viðburðum úr daglega lífinu. Strax í æsku urðu foreldrar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert