Author: lensherra

Ruglaður ræningi, geggjuð galdranorn og spilandi kaffikvörn

Leikfélag ÖlfussRummungur ræningieftir Otfried PreußlerLeikstjóri: Ármann Guðmundsson Það er skemmtileg ævintýrastemning í Ráðhúsi sveitarfélagsins Ölfus í Þorlákshöfn um þessar mundir, en þar sýnir Leikfélag Ölfuss fjölskylduleikritið Rummung ræningja eftir Otfried Preußler í þýðingu og leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Verkið er 9. verkefni L.Ö. frá því að félagið var vakið úr dvala árið 2005, en félagið stendur sig vel í að ala upp nýja kynslóð leikhúsáhugafólks í Ölfusi, sem og nýja kynslóð leikhúsáhorfenda. Rummungur ræningi fjallar um tvo pilta þá Sæla og Kaspar, sem mæta til ömmu sinnar á afmælisdaginn hennar til að gleðja hana með forláta gjöf, kaffikvörn sem einnig...

Read More

Gamli maðurinn á fjalirnar að nýju

Brúðuheimar með Bernd Ogrodnik brúðulistamann í fararbroddi, settu upp sýninguna Gamli maðurinn og hafið á Listahátíð í vor í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Sýningin fékk frábærar viðtökur og var sýningum hætt fyrir fullu húsi í sumarbyrjun. En nú er Bernd mættur heim til Íslands til að færa Gamla manninn og hafið upp að nýju í Þjóðleikhúsinu og gefst nú fólki tækifæri á að bera þennan gullmola augum. Fyrstu sýningar fara fram þann 7. og 8. nóvember og aðeins verður um takmarkaðan sýningarfjölda er að ræða. Á þeim tíma sem frá er liðinn hefur margt drifið á daga Bernds brúðulistamanns. Hann...

Read More

Fíasól á Króknum

Næstkomandi laugardag, 3. nóvember, frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks barnaleikritið Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, í leikgerð hennar og Vigdísar Jakobsdóttur. Fjórir leikarar standa á sviðinu, auk þess sem tæknimaður sýningarinnar er rödd utansviðs sem og á upptöku, en nokkrir leikarar félagsins tóku upp leiklestur fyrir útvarpsraddir og raddir fyrir símtöl. Leikstjórar eru heimafólkið Guðný H. Axelsdóttir og Páll Friðriksson en þau hafa starfað með félaginu í rúmlega 20 ár. Flækjuhausinn Fíasól er átta ára drottning í sínu eigin, risastóra hugmyndaríki. En stundum fljúga hugmyndirnar svo hátt að hún missir þær út í vitleysu. Í sýningunni kynnumst við fjölskyldu hennar, Ingólfi...

Read More

Fjögur verk í undirbúningi í Þjóðleikhúsinu

Í Þjóðleikhúsinu er hafinn undirbúningur fyrir þrjár sýningar sem frumsýndar verða eftir áramót og í næstu viku hefjast æfingar á Macbeth, jólasýningu Þjóðleikhússins. Síðustu daga hafa leikhópar þriggja sýninga sem frumsýndar verða eftir áramót í Þjóðleikhúsinu hafið undirbúningsvinnu. Fyrst má þar nefna nýtt íslenskt verk sem sérstaklega var skrifað fyrir Þjóðleikhúsið, Karma fyrir fugla, eftir listakonurnar Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur. Karma fyrir fugla verður frumsýnt í febrúar í Kassanum. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir og leikarar eru Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hilmir Jensson, Kristbjörg Kjeld, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Þorsteinn Bachmann. Kvennafræðarinn eftir Kamillu Wargo Brekling...

Read More

Gullregn frumsýnt á Nýja sviðinu

Gullregn Ragnars Bragasonar verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins 1. nóvember næstkomandi. Gullregn er mannlegt og broslegt en um leið harmrænt verk um fólk sem við þekkjum öll. Hér birtast Íslendingar nútímans með öllum sínum kostum og göllum. Hrár og ómengaður samtími. Leikstjórn er í höndum hins margreynda kvikmyndagerðmanns Ragnars Bragasonar en þetta er frumraun hans í leikhúsi. Mugison semur tónlist, Hálfdan Petersen hannar leikmynd og Helga Rós V. Hannam búninga. Þegar er uppselt á 23 sýningar af verkinu. Indíana Jónsdóttir býr í blokk í Fellahverfinu umkringd fólki af erlendum uppruna sem hún fyrirlítur. Indíana lifir á bótum en...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert