Author: lensherra

Spunanámskeið í Gaflaraleikhúsinu

Leikfélag Hafnarfjarðar heldur námskeið í spuna og leikhússporti næstu 5 laugardaga í Gaflaraleikhúsinu frá kl. 14.00 til 17.00. Námskeiðinu lýkur laugardagskvöldið 15 desember með æsispennandi leikhússportkeppni. Leiðbeinandi er Gísli Björn Heimisson, Norðurlandameistari í Leikhússporti. Hámarksfjöldi nemenda er 12 og námskeiðsverð er 8.000 krónur. Skráning fer fram í namskeid@gaflaraleikhusid.is (fyrstur kemur fyrstur...

Read More

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Nashyrningana

Stúdentaleikhúsið í samstarfi við Norðurpólinn sýnir eitt helsta verk Absúrdleikhússins, Nashyrningana, eftir franska skáldið Eugéne Ionesco. Verkið er nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi í 23 ár en þess hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Stúdentaleikhúsið hefur leikið sig inn í hjörtu landsmanna með framsæknum sýningum í áraraðir og nú verður sannarlega haldið í þá hefð. Leikstjóri er Árni Kristjánsson. Nashyrningarnir fjallar um lítinn bæ þar sem bæjarbúar tapa mennsku sinni og breytast í nashyrninga, einhyrnda eða tvíhyrnda. Rökhugsun, tungumál og náungakærleikur hverfur úr bænum en við tekur traðkandi taktur nashyrninganna. Sýningarfjöldi er takmarkaður og því nauðsynlegt að...

Read More

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Ævintýrið um Augastein er hugljúft jólaævintýri sem frumsýnt var fyrir 10 árum og hefur verið sýnt reglulega á aðventunni bæði hér á landi og í Bretlandi. Nú hafa orðið kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson er tekinn við af Felix Bergssyni, sem hefur borið uppi sýninguna frá byrjun. Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Það sama ár kom ævintýrið út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda. Fyrsta sýning verður sunnudaginn 25. nóvember og verða sýningar á sunnudögum út aðventuna. Verkið byggir...

Read More

Ertu með hugmynd að sögu, leikriti eða kvikmynd?

Ritsmiðja verður sett á laggirnar 21. nóvember næstkomandi. Farið verður í gegnum bókina Anatomy of Story eftir John Truby. Aðferðir Trubys við að skrifa sögur verða skoðaðar og ræddar. Ritsmiðjan verður haldin á þriðjudagskvöldum fram í febrúar á næsta ári. Á þeim tíma mun hver þátttakandi skrifa eigið verk; smásögu, skáldsögu, leikrit eða kvikmyndahandrit.   Leiðbeinandi á námskeiðinu er Helgi Sverrisson kvikmyndaleikstjóri. Hann segir ritsmiðjuna kjörinn vettvang fyrir þá sem vilja vinna að eigin verki en jafnframt vinna með öðrum. Þátttökukostnaður er enginn; það eina sem þarf er að vera með hugmynd að eigin hugverki og vera tilbúinn að...

Read More

Velkomin til Bjarmalands!

Föstudagskvöldið 9. nóvember kl. 21.00 frumsýnir Leikfélagið Peðið óperuna Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einarsson í Kjallaranum Laugarvegi 73. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Bjarmaland II er sjálfstætt framhald óperunnar Bjarmaland rísandi land, sem flutt var af Peðinu í fyrra. Þá kynntumst við ástföngnu fólki sem var í giftingarhugleiðingum á barnum. Við fylgdumst með ástfangna parinu og urðum vitni að ofsafenginni ást bónda og femínista. Pörin tvö notfærðu sér það að á barnum var staddur prestur og giftu sig „med det samme“.
Nú er komið að brúðkaupsferð ástfangna parsins sem ferðast innanlands, enda sannir Bjarmlendingar þar á...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert