Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói
Ævintýrið um Augastein er hugljúft jólaævintýri sem frumsýnt var fyrir 10 árum og hefur verið sýnt reglulega á aðventunni bæði hér á landi og í Bretlandi. Nú hafa orðið kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson er tekinn við af Felix Bergssyni, sem hefur borið uppi sýninguna frá byrjun. Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Það sama ár kom ævintýrið út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda. Fyrsta sýning verður sunnudaginn 25. nóvember og verða sýningar á sunnudögum út aðventuna. Verkið byggir...
Read More


