Mary Poppins frumsýnd á Stóra sviðinu
Föstudaginn 22. febrúar kl. 20 verður söngleikurinn Mary Poppins frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary Poppins (15 leikarar, 17 manna kór og dansarar Íslenska dansflokksins, 10 manna hljómveit og 4 börn) og mikill fjöldi á bak við tjöldin. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir verkinu og Gísli Rúnar Jónsson annast þýðingu á lausu og bundnu máli. Tónlistarstjóri er Agnar Már Magnússon en hann leiðir 10...
Read More


