Author: lensherra

Karma fyrir fugla frumsýnt 1. mars

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk þann 1. mars í Kassanum.  Verkið, Karma fyrir fugla, er eftir þær Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem báðar eru myndlistarmenntaðar. Karma fyrir fugla er í senn ljóðrænt og sálfræðilegt verk um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðarinnar á sálinni, ranglæti og fegurð. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir en hún hefur á undanförnum árum leikstýrt í Þjóðleikhúsinu rómuðum uppfærslum á nýjum íslenskum verkum, Utan gátta og Svörtum hundi prestsins. Leikritið Karma fyrir fugla er frumraun höfundanna á sviði leikritunar en verkið hefur verið um nokkra hríð í vinnslu í skjóli leikhússins. Kristín hefur á undanförnum árum...

Read More

Gutti og félagar – sögu vil ég segja stutta

Nýtt íslenskt barnaleikrit, Gutti og félagar, byggt m.a. á Guttavísum Stefáns Jónssonar, verður frumsýnt föstudaginn 22. febrúar næstkomandi hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli Skans og Vala kona hans, Ranka sem var rausnarkerling, Pennastokkur læknir og fleiri koma einnig við sögu. Stefán Jónsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar og sögur hans og ljóð hafa lifað með...

Read More

Kómedíuleikhúsið sýnir leikrit um Sigvalda Kaldalóns

Kómedíuleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikrit, Sigvaldi Kaldalóns, í Hömrum á Ísafirði á föstudag. Hér er á ferðinni leikverk sem fjallar um ár Sigvalda í Djúpinu fyrir vestan. Þar dvaldi hann í ein ellefu ár sem læknir. Þrátt fyrir mikið annríki í hinu afskekkta en víðferma læknishéraði gaf hann sér tíma til að semja lög. Á þeim ellefu árum sem hann dvaldi í Djúpinu samdi hann um 100 lög og eru mörg þeirra meðal hans kunnustu verka. Höfundur og leikari er Elfar Logi Hannesson. Með honum á sviðinu er Dagný Arnalds sem sér um allt í senn hljóðfæraleik, söng og...

Read More

Snúður og snælda frumsýna í Iðnó

Nýtt íslenskt leikverk, Ráðabruggið og bland í poka eftir Sellu Páls, Bjarna Ingvarsson og leikhóp Snúð og Snældu, verður frumsýnt í Iðnó laugardaginn 16. febrúar kl. 14. Verkið gerist á vistheimili þar sem aldraðir búa. Vistheimilið er 50 ára og í tilefni þess hefur hópur vistmanna tekið að sér að æfa upp skemmtidagskrá. Dagskráin inniheldur leikritið Ráðabruggið og nokkra gaman þætti þar sem stikklað er á milli söng atriða. Bjarni Ingvarsson leikstýrir, en hann hefur leikstýrt og leikið í fjölda leiksýninga og leikið í nokkrum kvikmyndum. Bjarni var einn af stofnendum og stjórnendum Möguleikhússins. Ráðabruggið er eftir Sellu Páls...

Read More

Fjör á Ruslahaugnum

HalaleikhópurinnRympa á ruslahaugnum eftir Herdísi EgilsdótturLeikstjóri: Herdís Ragna Þorgeirsdóttir Ég skrapp á laugardaginn á Rympu á Ruslahaugnum sem Herdís Ragna Þorgeirsdóttir setur upp með Halaleikhópnum í Halanum í Hátúni 12. Verkið sem er eftir Herdísi Egilsdóttur var fyrst sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 1987 við góðar viðtökur og hefur verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga víða um land síðan. Það var því komin tími á að það rataði hingað í höfuðborgina fyrir nýja kynslóð áhorfenda. Verkið er eins og mörg höfundaverk Herdísar með ákveðin skilaboð til yngstu áhorfendanna um það hvernig á að haga sér í samfélaginu og að þjófnaður og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert