Sýningar hefjast að nýju á Með fulla vasa af grjóti
Sýningar á tvíleiknum Með fulla vasa af grjóti hefjast að nýju á Stóra sviði Þjóðleikhússins á fimmtudagskvöldið, en sýningin gekk þar fyrir fullu húsi í haust, þar til gera þurfti hlé á sýningum vegna annarra anna leikara. Tekið var forskot á sæluna með tveimur sýningum á Akureyri um liðna helgi, og er skemmst frá því að segja að Norðlendingar tóku þessari frábæru sýningu með kostum og kynjum og fylltu Samkomuhúsið. Sýningin fékk afbragðs viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda þegar hún var frumsýnd á Stóra sviðinu þann 15. september síðastliðinn, rétt eins og þegar hún var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu í...
Read More


