Aukasýningar á Gutta um helgina
Tvær aukasýningar verða á Gutta og félögum hjá Leikfélagi Kópavogs nú um helgina. Þegar er uppselt á sýningu sun. 7. apríl og miðum fer óðum fækkkandi lau. 6. apríl. Uppselt hefur verið á allar sýningar frá byrjun. Gutti og félagar er byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum Stefáns Jónssonar. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Nánari upplýsingar á www.kopleik.is. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Auk Gutta eru aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli...
Read More


