Author: lensherra

Ávarp á alþjóðleikhúsdaginn 27. mars 2013

eftir Dario Fo Fyrr á tíð brugðust yfirvöld við sviðsetningum Commedia dell´Arte-leikara með því að flæma þá úr landi. Yfirstandandi kreppa veldur því að leikarar og leikhópar eiga í erfiðleikum með að finna leikrými og að ná til áhorfenda með sýningum sínum. Þar sem gagnrýnið leiklistarfólk býr við þær aðstæður að hafa hvorki leiksvið né áhorfendur stafar yfirvöldum engin hætta af þeim lengur. Á tímum endurreisnarinnar á Ítalíu urðu valdhafar hins vegar að leggja mikið á sig til þess að hafa taumhald á gamanleikurum, enda nutu hinir síðarnefndu almennrar hylli. Það er alkunna að mikill flótti brast á í...

Read More

Leikfélögin í Fjallabyggð sýna nýtt íslenskt leikrit

Þann áttunda mars sl. frumsýndu Leikfélögin á Ólafsfirði og Siglufirði nýtt íslenskt leikrit, Stöngin inn!, í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Höfundur og leikstjóri er Guðmundur Ólafsson. Þegar hafa verið fimm sýningar við feikigóðar viðtökur. Næsta sýning verður á Skírdagskvöld 28. mars. Þetta er fyrsta sameiginlega leiksýning leikfélaganna tveggja í Fjallabyggð og fyrsta skrefið í að sameina félögin. Í stuttu máli þá fjallar verkið um það ástand sem skapast í litlu bæjarfélagi þegar konurnar fara í kynlífsverkfall til að mótmæla mikilli fjarveru manna sinna, sem eru flest kvöld að heiman að horfa á knattspyrnu í sjónvarpinu. Það sem er í...

Read More

Núna! – Þrjú ný íslensk verk frumsýnd

Í fyrravetur fékk Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að skrifa stutt verk um íslenskan samtíma. Þrjú þessara verka voru valin til sviðsetningar og verða frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins fyrsta föstudag eftir páska, 12. apríl kl. 20. Sýningin ber heitið Núna! og samanstendur af verkunum Skríddu eftir Kristínu Eiríksdóttur, Svona er það þá að vera þögnin í kórnum eftir Sölku Guðmundsdóttur og Skúrinn á sléttunni eftir Tyrfing Tyrfingsson. Raddirnar í verkunum eru ólíkar en þau eiga það sameiginlegt að vera fersk og djörf og bregða upp áhugaverðri mynd af lífi Íslendinga í dag. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Skríddu eftir...

Read More

BLAM! frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins 3. apríl

BLAM!, nýjasta verk Krisjáns Ingimarssonar, verður frumsýnt á Stóra sviðinu strax eftir páska, miðvikudaginn 3. apríl kl 20. BLAM! er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem frábærir listamenn (og eldhugar) endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik. Sýningin hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og víðar um heim og í lok síðasta leikárs hlaut hún Reumert verðlaun dómnefndar sem sýning ársins. Aðeins fimm sýningar verða á verkinu í Borgarleikhúsinu, sýnt þétt dagana 3 – 7 apríl. Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu á sorglegustu skrifstofu veraldar undir...

Read More

Gúttó – Hlegið hátt og dansað dátt í 40 ár á Ísafirði

Litli leikklúbburinn á Ísafirði frumsýnir söngsýninguna Gúttó – Hlegið hátt og dansað dátt í 40 ár laugardaginn 23. mars kl. 21. Um er að ræða fjöruga söngsýningu þar sem saga Gúttó á Ísafirði er rifjuð á fjörugan hátt í tali og tónum. Andi hljómsveita eins og BG og Ingibjörg, Ásgeir og félagar, Gancia, Villi Barði Gunnar og fleiri svífur yfir vötnum. En þær hljómsveitir spiluðu sem mest í Gúttó á Ísafirði, sem var lengi vel eini dansstaður bæjarbúa. Sagan gerist að hluta til á rakarastofu í bænum. Rifja menn upp fjörið í Gúttó, slagsmálin í portinu og eflast bregður...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert