Allra síðasta sýning á Homo Erectus
Lokasýning Pörupilta á uppistandinu Homo Erectus verður sýnd í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 5. apríl. Sýningin var sýnd fyrir fullu húsi sl. vetur, sem fyrri hluti sýningarinnar Uppnáms þar sem tvíeykið Viggó og Víóletta stigu á stokk eftir hlé. En nú hafa Pörupiltar unnið uppistandið Homo Erectus áfram. Uppistandið er lengra, fyndnara og fræðilegra – fjallkonan hefur bæst við og frekari vangaveltur um lífið og tilveruna. Pörupiltar eru á milli starfa og milli kvenna. Þeir hafa farið á mörg sjálfstyrkingarnámskeið hjá Vinnumálastofnun og lært helvíti margt. Nú vilja þeir gefa af sér til samfélagsins – kenna ykkur eitthvað af því sem þeir...
Read More


