Author: lensherra

Pörupiltar í útrás

Pörupiltar eru í útrás og verða með uppistandið sitt Homo Erectus í Pop Up Art House leikhúsinu, Diana scene í Finnlandi þriðjudaginn 4. júní nk. kl. 19.00. Uppistandið verður lokasýningin á leiklistarhátíð sem leikhópurinn Blaue Frau stendur fyrir. Það eru leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir sem eru konurnar á bak við Pörupilta. Pörupiltarnir Nonni, Dóri og Hemmi hafa verið að trylla lýðinn í Þjóðleikhúskjallaranum sl. tvö ár með Homo Erectus uppistandi sínu ásamt því að skrifa kvikmyndahandrit og vaska upp svart í frístundum. Þeir stefna á heimsfrægð, enda leika þeir uppistandið á ensku í Finnlandi....

Read More

Tilnefningar til Grímunnar 2013

Tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna Grímunnar 2013 voru opinberaðar við formlega athöfn á Stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, fimmtudaginn 30 maí. Gríman er uppskeruhátíð sviðslistafólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hafa veg og vanda að Grímuverðlaununum. Grímuhátíðin verður haldin í ellefta sinn í ár, nú í Þjóðleikhúsinu 12. júní n.k. og verður athöfninni sjónvarpað beint á RÚV. Tilnefningar til Grímuverðlauna eru listaðar í heild sinni hér fyrir neðan: Sýning ársins· BLAM! – Neander og Borgarleikhúsið· Englar alheimsins – Þjóðleikhúsið· Gullregn- Borgarleikhúsið· Macbeth – Þjóðleikhúsið· Mary Poppins – Borgarleikhúsið Leikrit ársins· Einar Már Guðmundsson / Þorleifur...

Read More

Fundargerð aðalfundar 4. maí 2013 í Logalandi

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn 4. maí í Logalandi, Reykholti 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins, setti fundinn og stakk upp á Bernharð Arnarsyni, Leikfélagi Hörgdæla, og Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara þjónustumiðstöðvar, og Magnþóru Kristjánsdóttur, Leikfélagi Ölfuss, sem fundarriturum. Tillagan samþykkt. Lögmæti fundarins staðfest. Fundarmenn kynntu sig. 2. Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og afhendir atkvæðaspjöld, skýrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör og auglýsir eftir tillögum. Kjörnefnd deildi út atkvæðaseðlum og Dýrleif Jónsdóttir, Leikfélaginu Sýnum og formaður kjörnefndar gerði grein fyrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör. 3. Menningarstefna Bandalagsins lesin og rædd. Ólöf Þórðardóttir, Leikfélagi Mosfellssveitar og ritari stjórnar, las Menningarstefnu Bandalagsins. Engar umræður. 4. Staðfest inntaka nýrra félaga, félög tekin af félagaskrá. Þráinn Sigvaldason, Leikfélagi Fljótsdalshéraðs og stjórnarmaður Bandalagsins, greindi frá því að ekkert félag gekk til liðs við Bandalagið á leikárinu en Leiklistarfélag Seltjarness, Leikfélag Raufarhafnar, Leikfélagið Baldur og Leikfélag Siglufjarðar gengu úr Bandalaginu. Það síðastnefnda hyggst þó sameinast Leikfélagi Ólafsfjarðar undir merkjum Leikfélags Fjallabyggðar. 5. Fundargerð síðasta aðalfundar afgreidd. Bernharð Arnarson bar fundargerð síðasta aðalfundar undir fundinn og var hún samþykkt. 6. Skýrsla stjórnar. Þorgeir Tryggvason flutti skýrslu stjórnar: Skýrsla stjórnar á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga í Logalandi 4.–5. maí 2013 I – Stjórn Á starfsárinu skipuðu stjórn  þau: Þorgeir Tryggvason, Reykjavík, formaður Guðfinna Gunnarsdóttir, Selfossi, varaformaður Ólöf Þórðardóttir, Mosfellsbæ,...

Read More

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir Logskerann

Leikfélag Hafnarfjarðar frumssýnir leikritið Logskerann eftir Magnús Dalhström í gömlu Vélsmiðju Hafnarfjarðar (Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti) föstudaginn 31. maí kl 20.00. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikendur eru Gísli Björn Heimissson og Halldór Magnússon. Í tilefni Bjartra Daga í Hafnarfirði sem hefjast 31. maí þá eru allir boðnir velkomnir án endurgjalds á frumsýninguna 31 maí. Húsið verður opnað kl. 19.00. Leikritið gerist í búningsherbergi í járnsmiðju þar sem Jonni og Úlli hafa báðir hafa tekið sér frí á miðjum degi. Ljóst verður í upphafi leikritsins að vinskapur þeirra er ekki eins og best verður á kosið og þeir rífast...

Read More

Snúður og snælda gefa út 20 ára afmælisrit

Þegar leikfélag eldri borgara í Reykjavík, Snúður og Snælda, varð 20 ára árið 2010 réðst stjórn þess í það metnaðarfulla verkefni að láta rita sögu félagsins.  Bókin Saga Snúðs og Snældu er nú komin út og segir á skemmtilegan hátt sögu leikfélagsins en Sigrún Valbergsdóttir tók efni bókarinnar saman. Fjöldi mynda prýða bókina auk þess er sagt frá öllum leikverkum sem sett hafa verið upp á þessu tímabili, ferðalagi til Kanada, Þýskalands og fl. Þá er og nafnalisti yfir alla þá sem komið hafa við sögu leikfélagsins frá upphafi. Þetta er eiguleg gjöf til vina og vandamanna og því...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert