Author: lensherra

Draumar 2013 í Tjarnarbíói

Draumar 2013, alþjóðleg leiklistar- og stuttmyndahátið heyrnarlausra, er nú haldin í þriðja sinn hér á íslandi vikuna 10. til 16. júní. Þema hátíðarinnar að þessu sinni er börn, fjölskyldur og ungt fólk. Leiksýningarnar eru fjórar sem ásamt tíu stuttmyndum verða sýndar á tveimur bíókvöldum. Allar sýningarnar verða í Tjarnabíói þessa viku. Löndin sem taka þátt eru Ísland, Tékkland, Kanada, Noregur, Grænland, Danmörk, Þýskaland, Bretland, Svíþjóð og Spánn. Sýningarnar eru aðgengilegar öllum og miða og upplýsingar er hægt að nálgast...

Read More

Snæbjörn Brynjarsson tekur þátt í fjölþjóðlegri leiksýningu

Snæbjörn Brynjarsson, leikhúslistamaður og rithöfundur, frumsýndi verkið Swampclub 4. júní sl, með virta franska leikhópnum Vivariumstudio í Vínarborg. Verkið er samstarfsverkefni milli hátíðarinnar Vienna Festwochen (Vínar-leiklistarhátíðin) og nokkura franskra leikhúsa auk leikhópsins Vivariumstudio. Framundan er mikill túr með verkið, en eftir Vínarborg eru sýningar í Þýskalandi, Sviss, Frakklandi, Belgíu og Lettlandi svo nokkur dæmi séu nefnd. Vivariumstudio hefur verið starfrækt í 10 ár. Leikstjóri og aðalhugmyndasmiður hópsins Philippe Quesne leggur mikla áherslu á samspil manns og náttúru, gerviveröld nútímans á móti raunveruleikanum. Leikhópurinn hefur þróað verk fyrir listagallerí, almenningsrými á borð við garða og skóga, auk sjö leikverka. Verkin...

Read More

Leikfélag Hólmavíkur á leikferð um Vestfirði

Leikfélag Hólmavíkur leggur upp í ferðalag um helgina. Sýnt verður leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon í þýðingu og leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Sýnd verður ein sýning í Félagsheimilinu Bolungarvík, föstudaginn 7. júní og hefst sýningin klukkan 20.00. Einnig verður sýnt í Félagsheimilinu í Árnesi Trékyllisvík laugardaginn 8. júní og hefst sú sýning einnig klukkan 20.00. Miðaverð er 2500 kr. fyrir fullorðna en 1300 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Frítt er fyrir börn 5 ára og yngri. Posi verður á staðnum. Miðapantanir í síma 693-3474. Leikritið, sem heitir á ensku The Odd Couple, fjallar um ungan fréttamann sem hefur verið...

Read More

Síðasta sýning á Logskeranum

Nú fer hver að verða síðastur að sjá leikritið Logskeran eftir Magnus Dalhström í uppfærslu Leikfélags Hafnarfjarðar. Síðasta sýning er á miðvikudaginn 5. júní og hefst kl. 20.00 og er  sýnt í Gaflaraleikhúsinu. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og leikendur eru Gísli Björn Heimissson og Halldór Magnússon. Leikritið gerist í búningsherbergi í járnsmiðju þar sem Jonni og Úlli hafa báðir tekið sér frí á miðjum degi. Ljóst verður í upphafi leikritsins að vinskapur þeirra er ekki eins og best verður á kosið og þeir rífast stanslaust. Jonni sakar Úlla um það að hafa gleymt að skrúfa fyrir gasið á...

Read More

Athygliverðasta áhugaleiksýningin 16. júní

Leikfélögin í Fjallabyggð, Leikfélag Siglufjarðar og Leikfélag Ólafsfjarðar, munu sýna söng- og gamanleikinn Stöngin inn á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu 16. júní kl. 19.30. Stöngin inn hefur fengið frábær viðbrögð og frábærar viðtökur í heimabyggð, en yfir 1.000 manns hafa séð verkið og svo haldið til síns heima með bros á vör, en valnefnd Þjóðleikhússins útnefndi sýninguna Athygliverðastu áhugaleiksýninguna 2013 nú á dögunum. Það verður enginn svikinn af þessari skemmtilegu sýningu sem inniheldur m.a. söng, grín og glens, baráttu kynjanna, knattspyrnu og kynlífsleysi. Valnefnd sagði um sýninguna: „Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðu krafta sína í uppsetningunni á þessu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert