Gilitrutt frumsýnt í Elliðárdal
Leikhópurinn Lotta frumsýnir miðvikudaginn 22. maí kl. 18.00 nýjan íslenskan söngleik um tröllskessuna Gilitrutt í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Lotta setur sýningar sínar upp úti undir berum himni og ferðast með þær um allt land. Einnig er verkið á sama tíma gefið út á hljóðdiski. Gilitrutt er skrifað af Önnu Bergljótu Thorarensen, sem skrifar nú sitt þriðja verk fyrir hópinn en hún skrifaði einnig Stígvélaða köttinn og Mjallhvíti. Hér blandar hún ævintýrunum um Búkollu, geiturnar þrjár og tröllskessuna Gilitrutt saman í splunkunýtt og sprellfjörugt leikrit. Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir. Verkið fjallar um sprenghlægileg uppátæki tröllskessunnar Gilitruttar og bróður hennar Bárðar...
Read More


