Author: lensherra

Spindrift Theatre sýnir á Íslands

Leikhópurinn Spindrift Theatre sýnir í fyrsta sinn á Íslandi 3 stuttverk byggð á þremur rannsóknarverkefnum þriggja meðlima hópsins. Hópurinn samanstendur af fimm ungum konum frá Finnlandi, Noregi, Skotlandi og Íslandi sem allar lærðu leiklist í Rose Bruford College í Bretlandi. Þríleikurinn er samsettur af mismunandi tilraunum, listastefnum og stílum og er hópurinn spenntur fyrir því að rannsaka verkin áfram útfrá viðbrögðum áhorfenda. Verkin verða sýnd hvert á fætur öðru og í lok sýninganna verður boðið upp á kaffi og umræður þar sem leikhópurinn vill gjarnan heyra skoðanir áhorfenda og fá spurningar frá þeim. Þríleikur eru stuttverkin: Me, Whilst Being...

Read More

Vesturport frumsýnir á afmælisári Act alone

Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, fangar eins tuga afmæli í ár. Einsog vænta má er því dagskrá ársins sérlega einstök og einleikin. Afmælis dagskráin var formlega opinberuð í sjávarþorpinu Suðureyri í dag, föstudag. Alls verður boðið uppá 18 viðburði á hátíðinni og rétt er að taka fram að aðgangur að öllum viðburðum er ókeypis einsog verið hefur frá upphafi. Hátíðin verður haldin aðra helgina í ágúst dagana 8. – 11. ágúst í sjávarþorpinu Suðureyri. Leiksýningar eru ávallt í fyrirrúmi á Act alone og svo verður einnig í ár. Hinn margverðlaunaði leikhópur Vesturport frumsýnir nýjan íslenskan einleik á afmælisári Act...

Read More

Gríman 2013

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 11. skiptið við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Kynnir kvöldsins var Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Gunnar Eyjólfsson hlýtur Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Macbeth var valin sýning ársins, Englar alheimsins leikrit ársins auk fjölda annarra verðlauna sem skiptast þannig:     Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands 2013 Gunnar Eyjólfsson fyrir ævistarf í þágu sviðslista á Íslandi Sýning ársins 2013 MacBetheftir William ShakespeareLeikstjórn Benedict AndrewsÞýðing Þórarinn EldjárnÍ sviðsetningu Þjóðleikhússins Leikrit ársins 2013 Englar AlheimsinsLeikgerð eftir Þorleif Örn Arnarsson og Símon BirgissonByggt á skáldsögu eftir Einar Má GuðmundssonLeikstjórn Þorleifur Örn...

Read More

Elfar Logi Hannesson

Netfang: komedia@komedia.is Sími: 891 7025 Nam leiklist við hin geggjaða leiklistarskóla The Commedia School í Danmörku og útskrifaðist þaðan 1997. Stofnandi og stjórnandi Act alone leiklistarhátíðarinnar og Kómedíuleikhússins. Hefur leikstýrt á fimmta tug leiksýninga um land allt hjá áhugaleikfélögum, atvinnuleikhúsum og skólum. Meðal sýninga sem ég hef sett á svið má nefna: Hassið hennar mömmu Bróðir minn ljónshjarta Emil í Kattholti Lína Langsokkur Ronja ræningjadóttir Skvaldur Stræti Stæltir stóðhestar Hefur samið fjölmörg leikrit, leikgerðir auk vinsælla söngvasjóva. Nægir þar að nefna: Andaglasið – söngleikur fyrir og leikin af börnum Á skíðum skemmti ég mér – söngvasjóv samið í kringum...

Read More

Eyvindur Karlsson

svarthjalmar@gmail.com868 9742 / Kt. 071281 3619www.eyvindur.is Leikhús er galdur, sameiginleg lífsreynsla, gjafmildi og samvinna. Sama hvort um er að ræða söngleiki eða Shakespeare, grin eða alvöru, farsa eða líkamlegt leikhús hef ég alltaf tvö meginstef að leiðarljósi: Gleði og metnað. Ég vinn með fjölbreyttar aðferðir sem blanda saman texta, líkamlegri nálgun, leikjum og sköpun á forsendum hvers og eins, og set markið alltaf hátt. Hafið endilega samband og við skulum búa til stórkostlegan galdur og skemmta okkur konunglega á meðan. MenntunFrantic Assembly International Summer School 2025 – Verkleg vinnustofa í “Frantic” aðferðinni við að búa til líkamlegt leikhúsUniversity of...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert