Author: lensherra

Kviksyndi drauma þinna – Vinnustofa i physísku leikhúsi

Dagana 18.-21. nk. júlí heldur Hrefna Lind Lárusdóttir námskeið í physísku leikhúsi í leikhúsinu Frystiklefanum á Rifi, Snæfellsnesi. Á þessu námskeiði er unnið með leiktækni Jerzy Grotowski og raddþjálfun sem byggir á hugmyndum Roy Harts. Viðfangsefnið verður draumar og þrár og verða undirmeðvitundin og draumar skoðuð í gegnum líkamstjáningu og rödd. Þátttakendur verða beðnir um að beina athygli sinni að draumum sínum og halda litla draumadagbók sem undirbúning fyrir námskeiðið. Unnið verður með spuna til að framkalla ómeðvitaðar myndir sem birtast í undirmeðvitundinni. Áhugasamir listamenn, hvort sem það eru myndlista-, sviðslista- eda tónlistarfólk geta sótt námskeiðið. Þessi vinnustofa gengur...

Read More

21:07 í Frystiklefanum

Þann 5. nóvember 1993 hópaðist áhugafólk um geimverur og fljúgandi furðuhluti vestur á Snæfellsjökul til að verða vitni að heimsókn úr geimnum, sem sjáendur víðs vegar um heiminn höfðu séð fyrir. Tímasetning heimsóknarinnar var nákvæm. Klukkan 21:07 áttu geimverur að lenda á jöklinum. Íbúar á utanverðu Snæfellsnesi fóru ekki varhluta af þessum einstaka viðburði, og þeirri athygli sem hann vakti í fjölmiðlum, bæði hér heima sem og erlendis. Nú, 20 árum síðar, hafa leikararnir Kári Viðarsson og Víkingur Kristjánsson sökkt sér niður í heimildir og byggt á þeim leiksýninguna 21:07. Þeir fara auk þess með öll hlutverk í verkinu....

Read More

Lúkas sýnt í Rýminu á Akureyri

Nú standa yfir hjá Norðurbandalaginu sýningar á nýju leikverki sem hlutið hefur nafnið Lúkas. Sýningin er spunasýning unnin af leikhópnum Norðurbandalaginu undir leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Sýnt er í Rýminu á Akureyri og næstu sýningar verða fimmtudagana 4. og 11. júlí. Verkið samanstendur af ótrúlegum sönnum sögum, sögum um fólk, hefnd og frið, sögur af því hversu orðljótt fólk getur verið á kommentakerfum veraldarvefsins. Þekktasta sagan í verkinu er sagan um hundinn Lúkas sem týndist í kringum bíladaga árið 2007. Fljótlega fóru af stað sögusagnir og orðrómur um afdrif hundsins, hópur drengja átti að hafa troðið honum ofan í...

Read More

Sjö samúræjar í Elliðaárdalnum

Leikfélagið Sýnir sýnir nýja leikgerð af kvikmynd Akira Kurosawa, Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana 5.-8. júlí. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðmundur Erlingsson. Hér er um að ræða útileiksýningu þar sem náttúra Elliðaárdalsins nýtur sín til fulls í bakgrunninum og áhorfendur eru leiddir um dalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Lagt er af stað frá Félagsheimili Orkuveitunnar. Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið ef þeir eru óánægðir með ránsfenginn....

Read More

Íslenska óperan sýnir Carmen í haust

Næsta frumsýning hjá Íslensku óperunni verður um miðjan október en þá fer á svið ein vinsælasta ópera allra tíma, Carmen eftir Georges Bizet. Óperan hefur ekki verið sviðsett hérlendis í tæpa þrjá áratugi. Margir af okkar fremstu óperusöngvurum fara með hlutverk í óperunni en einnig munu nokkrir kornungir söngvarar þreyta frumraun sína á íslensku óperusviði. Hljómsveitarstjóri verður Guðmundur Óli Gunnarsson, leikstjóri Jamie Hayes og leikmyndahöfundur Will Bowen en tveir þeir síðastnefndu voru ábyrgir fyrir hinni geysivinsælu og verðlaunuðu sýningu Íslensku óperunnar á La Bohème fyrir rúmu ári. Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsir sýninguna og búningahönnuður er Helga I. Stefánsdóttir. Í...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert