Leiklistarhátíðin LÓKAL 2013
Nýjustu straumar og stefnur í leiklistinni miða í sömu átt: Listamennirnir opna dyr leikhússins í eiginlegri og óeiginlegri merkingu, bæði hvað varðar innihald og form. Dagskrá LÓKAL 2013 er einmitt sett saman í þessum anda: Áhorfendum er boðið upp á einfaldar, kraftmiklar og opnar leiksýningar og hulunni verður svipt af öllum þeim tækjum og tólum sem nýtast við leikhúsgaldurinn, hvort sem það eru kunnugleg meðul eða nýjasta tækni. Á meðal gesta hátíðarinnar í ár skal fyrst telja hinn margverðlaunaða leikhóp Verk Produksjoner frá Osló sem sýnir „Build Me A Mountain“,skrautlega útfærslu sína á aðferðum Bertolts Brecht. Helsinki-búinn Juha Valkeapää...
Read More


