GRAL frumsýnir Eiðinn og Eitthvað
Leikhópurinn GRAL frumsýnir leikverkið Eiðurinn og Eitthvað, fyrsta vekrið sem Gubergur Bergsson skrifar fyrir leiksvið, á leiklistarhátíðinni LÓKAL þann 28. ágúst 2013 í Tjarnarbíói. Aðlögun og leikstjórn er höndum Bergs Þórs Ingólfssonar en leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Verkið verður síðan sýnt áfram út september. Skáldið stendur á sviðinu með óstraujaðar buxur og ómótaðar hugmyndir í kollinum um tvö leikverk. Hann kallar fram persónur sem hefja leik. Tveir menn sitja á sjúkrarúmi og velta fyrir sér tilgangi tilverunnar. Kona í hvítum sloppi kemur inn og hristir rassinn. Er þessi kona komin...
Read More


