Author: lensherra

Leikklúbburinn Saga frumsýnir Leyndarmál

Leikklúbburinn Saga frumsýnir í kvöld, 6. ágúst, leikritið Leyndarmál eftir Jónínu Leósdóttur. Leikstjórn er í höndum leikhópsins en hann skipa ungmenni á aldrinum á aldrinum 15 til 25 ára. Leikritið verður sýnt í Rýminu á Akureyri miðvikudags- og fimmtudagskvöld klukkan 20.30. Á föstudagskvöld hefst sýning hins vegar klukkan 19.30. Leikklúbburinn Saga var stofnaður árið 1976 en var endurreistur í fyrra eftir að hafa legið nokkur ár í dvala. Leyndarmál segir af vinahópi í framhaldsskóla. Þau eru hvert með sínu laginu en fljótlega kemur í ljós að aðalpersónana, Sólveig, á í einhverju sálarstríði. Hún er vansæl og líður illa heima...

Read More

Menningarhátíðin Act Alone 2013

Dagana 8. – 11. ágúst fer fram allsherjar leik, og tónlistarveisla fyrir vestan, nánar tiltekið á Suðureyri við Súgandafjörð. Hátíðin ber nafnið ACT ALONE og eitt af því sem gerir hana sérstaka er að frítt er inn á alla viðburði helgarinnar og því upplagt að skella sér vestur í menningarveislu með börn og buru. Dagskráin er sérlega vönduð og fjölbreytt að þessu sinni enda um tíu ára afmælishátíð að ræða. Allt þorpið verður undirlagt í skemmtun og því hægt að fara á milli viðburða allann daginn og langt fram á sumarkvöldið fagra. Á Suðureyri er líka frábær sundlaug og...

Read More

Leiklistarhátíðin LÓKAL 2013

Nýjustu straumar og stefnur í leiklistinni miða í sömu átt: Listamennirnir opna dyr leikhússins í eiginlegri og óeiginlegri merkingu, bæði hvað varðar innihald og form. Dagskrá LÓKAL 2013 er einmitt sett saman í þessum anda: Áhorfendum er boðið upp á einfaldar, kraftmiklar og opnar leiksýningar og hulunni verður svipt af öllum þeim tækjum og tólum sem nýtast við leikhúsgaldurinn, hvort sem það eru kunnugleg meðul eða nýjasta tækni. Á meðal gesta hátíðarinnar í ár skal fyrst telja hinn margverðlaunaða leikhóp Verk Produksjoner frá Osló sem sýnir „Build Me A Mountain“,skrautlega útfærslu sína á aðferðum Bertolts Brecht. Helsinki-búinn Juha Valkeapää...

Read More

Aukasýningar á Sjö samúræjum í Elliðaárdalnum

Leikfélagið Sýnir ætlar að sýna fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana í lok sumars, nánar til tekið dagana 31. ágúst til 7. september. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, þar sem áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðmundur Erlingsson. Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið ef þeir eru óánægðir með ránsfenginn. Að...

Read More

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Uppsprettan er að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, sem verða þá sett upp af Uppsprettunni á Menningarnótt í Reykjavík þann 24. ágúst næstkomandi. Handritin verða send til þeirra án þess að höfundar verði nafngreindir, en hinsvegar verða höfundar verkanna þriggja, sem valin verða, nafngreindir á sýningarkvöldinu og á fésbókarsíðu Uppsprettunnar. Leikstjórarnir fá...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert