Sek frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar
Sek eftir Hrafnhildi Hagalín í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 4. október. Sek byggir á dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir ábúenda og vinnumanns í Rifshæðarseli á Melrakkasléttu fléttast saman í örlagaríkum ástarþríhyrningi. Með því að styðjast við texta og tilsvör úr dómskjölum frá þessum tíma byggir höfundurinn, Hrafnhildur Hagalín, upp spennandi atburðarás sem kemur áhorfandanum sífellt á óvart. Hrafnhildur Hagalín er eitt af fremstu leikskáldum landsins. Hún hlaut leikskáldaverðlaun Norðurlanda árið 1992 fyrir leikrit sitt Ég er meistarinn ásamt þvi að hljóta Norrænu Útvarps- leikhúsverðlaunin og Grímuna 2013 fyrir útvarpsverkið Opið hús. Önnur leikrit Hrafnhildar eru:...
Read More


