Author: lensherra

Tenórinn aftur á fjalirnar

Tenórinn var frumsýndur í Iðnó fyrir tíu árum síðan og sýndur þar og víða annarsstaðar við feikilega góðar undirtektir bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Til að halda upp á tíu ára afmælið kemur sýningin nú aftur á fjalir hins gamla og sögufræga samkomuhúss, Iðnó. Höfundur Tenórsins er Guðmundur Ólafsson og túlkar hann jafnframt titilhlutverkið en undirleikara hans leikur Sigursveinn Kr. Magnússon. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson. Tenórsöngvari sem hefur verið langdvölum í útlöndum er að fara að halda tónleika. Leikritið gerist á einum og hálfum klukkutíma í búningsherbergi ónefnds tónlistarhúss þar sem söngvarinn og undirleikari hans eru að undirbúa sig...

Read More

Maður að mínu skapi frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

Nýtt verk úr smiðju Braga Ólafssonar, Maður að mínu skapi, verður frumsýnt laugardaginn 14. september á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fyrri leikrit Braga Ólafssonar, Hænuungarnir og Belgíska Kongó  hlutu afbragðs viðtökur og voru bæði tilnefnd til Grímunnar, auk þess sem Bragi var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir Hænuungana. Líkt og í þessum verkum fer Eggert Þorleifsson nú með aðalhlutverk og Stefán Jónsson leikstýrir. Verkið fjallar um hina eilífu baráttu pennans og sverðsins. Fræðimaðurinn Guðgeir Vagn Valbrandsson er í þann veginn að leggja lokahönd á safnrit með fleygum orðum. Vinur hans Klemens Magnason, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, hyggur á endurkomu í stjórnmálin eftir...

Read More

Horn á Höfði í Tjarnarbíói

Barnasýning Horn á Höfði, verður sýnd í Tjarnarbíói frá 15. september nk. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009 en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var svo sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Sýningin hlaut einróma lof en Horn á höfði er fjörleg sýning sem höfðar til ungra sem aldinna. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfssono og er hann jafnframt höfundur ásamt Guðmundi Brynjólfssyni. Björn vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann veit ekki af hverju hann er með horn á höfðinu en veit að hann langar ekki til að líta út eins og geit. Því...

Read More

Skrímslið litla systir mín í Þjóðleikhúsinu

Þann 14. september hefjast sýningar á Skrímslið litla systir mín í Leikhúskjallaranum í Þjóðleikhúsinu. Höfundur, hönnuður og flytjandi er Helga Arnalds en leikstjóri og meðhöfundur Charlotte Böving. Skrímslið litla systir mín er sögustundarsýning Þjóðleikhússins og munu því öll 5 ára börn koma að sjá verkið. Boðið verður upp á opnar sýningar fyrir almenning um helgar í september en aðeins þrjár sýningahelgar. Skrímslið litla systir mín hlaut Grímuverðlaunin árið 2012 sem besta barnaleiksýningin. Litla skrímslið systir mín var frumsýnt í Norræna húsinu í febrúar 2012, en hér er sögð saga af strák sem hefur nýlega eignast litla systur. Hann kemst...

Read More

Leikfélag Ölfuss æfir Makalausa sambúð

Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á gamanleiknum Makalaus sambúð eftir Neil Simon en eftir leikritnu var einmitt gerð kvikmyndin The Odd Couple sem skartaði þeim Jack Lemon og Walter Matthau í aðalhlutverkum en ólíkt kvikmyndinni eru konur í aðalhlutverkum í þessari leikgerð. Leikstjóri er Eyjapeyjinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson sem meðal annars hefur numið og leikið í Hollywood ásamt því að leikstýra hjá Leikfélagi Vestamannaeyja og Leikfélagi Keflavíkur svo dæmi séu tekin. Það er ekki sjálfgefið að leikfélög í eins litlu samfélagi og Þorlákshöfn geti sett upp leiksýningu í fullri lengd á hverju ári. Á síðustu árum hafa ríkisstyrkir til...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert