Harmsaga á svið í Washington
Leikritið Harmsaga eftir Mikael Torfason verður sýnt í Kennedy Center í mars á næsta ári. Leikhópnum öllum og leikmynd verður flogið út til að vera eitt af stóru verkum á einni virtustu leikhúshátíð vestra. Um er að ræða mikla viðurkenningu fyrir það listafólk sem kemur að sýningunni sem leikstýrt er af Unu Þorleifsdóttur. Þetta er hennar fyrsta verk í Þjóðleikhúsinu en auk hennar komu að sýningunni þau John Grant sem sá um tónlistina, Eva Signý Berger sem gerði leikmynd og búninga, Kristinn Gauti Einarsson sem skapar hljóðmynd og Magnús Arnar Sigurðarson sem hannaði lýsinguna. Leikararnir, Elma Stefanía Ágústsdóttir og...
Read More


