Author: lensherra

Borgarbörn æfa jólasöngleik

Æfingar eru hafnar á árlegu jólaleikriti/jólasöngleik Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss. Um frumsamið verk er að ræða, unnið uppúr hugmyndum leikstjóra og spunum leikhópsins. Leikstjóri og handritshöfundur er Erla Ruth Harðardóttir, söngstjórn er í höndum Rebekku Sifjar Stefánsdóttur og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir. Átján ungmenni á aldrinum 11-15 ára taka þátt í uppfærslunni, ásamt nokkrum ungmennum á aldrinum 15-20 ára sem koma að ljósa- og hljóðstjórn og markaðsmálum. Sýningar verð í Iðnó við Reykjavíkurtjörn og er áætluð frumsýning föstudaginn 29....

Read More

Viltu leika hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar?

Leikfélag Hafnarfjarðar verður með samlestur á Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo mánudaginn 14. október næstkomandi. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta. Samlesturinn verður kl. 20.00 í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50. Athugið að sýningar á verkinu eru fyrirhugaðar í lok nóvember – byrjun...

Read More

Nýr leikhópur á Akureyri sýnir tvö leikverk á þessu leikári

Leikhópurinn Grímurnar var stofnaður síðastliðið haust þegar settur var upp söngleikurinn Berness, já takk & franskar á milli. Sýningin fékk góðar viðtökur og voru sýndar 12 sýningar í fullum sal Sjallans.  Nú eru framundan hjá leikhópnum  tvö ný og frumsamin leikverk. Á haustdögum er það gamanleikur með söng-farsa og tónlist sem heitir Gúgglaðu það bara sem frumsýnt verður í Sjallanum 15. nóvember. Eftir áramót verður svo barnasöngleikur settur upp í Hofi. Það er sannkallað ævintýri þar sem góð og ill öfl mætast með boðskap sem á vel við í nútímasamfélagi. Tónlist er eftir Gunnar Þórðarson og fleiri en tónlistin...

Read More

Leikfélag Ölfuss sýnir Makalausa sambúð

Þann 18. október n.k. frumsýnir Leikfélag Ölfuss leikritið Makalaus sambúð eftir Neil Simon. Leikritið verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem er ekki alveg jafn skipulögð. Þá eru spænsku bræðurnir Manolo og Jesus ekki til að bæta samskipti milli vinkvennanna. Drepfyndið verk sem þú ættir ekki að láta framhjá þér fara. Leikarar eru Ásta Margrét Grétarsdóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Ingólfur Arnarson, Oddfreyja...

Read More

Æfingar hafnar á Maríusögum hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á harmleiknum Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir og eru leikarar fimm talsins. Frumsýnt verður 25. október í Litla leikhúsinu við Sigtún. Leikritið gerist á (æsku)heimili Stefaníu, hugulsömu húsmóðurinnar, og Þráins, eiginmanns hennar. Tilefnið er fráfall föður Stefaníu. Marteinn bróðir hennar er þar mættur, eftir margra ára dvöl í Svíþjóð, og er alls ekki kátur þegar María, æskuvinkona þeirra systkina, kemur í heimsókn með nýjasta kærastann. Stefanía gerir allt hvað hún getur til að halda umræðunum frá því sem ekki má ræða en hættulegt leyndarmálið kemur að lokum upp á yfirborðið og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert