Author: lensherra

Leikfélag Vestmannaeyja vantar góðan leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja leitar eftir góðum leikstjóra til uppsetningar á  söngleik eftir áramót. Starfstími er frá 30. janúar og út mars 2014, auk skipulags vinnu hluta úr desember. Leikfélag Vestmannaeyja er áhugaleikfélag sem er á 103. starfsári sínu. Félagið býr yfir stóru húsnæði á þrem hæðum þar sem kjöraðstæður eru til sýninga og æfinga auk þess sem búnaður, hljóðkerfi og ljós, hefur verið mikið endurnýjaður á síðustu árum. Umsóknarfrestur er til 30. október 2013. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á birkir.hognason@gmail.com. Allar nánari upplýsingar gefur Birkir Thór Högnason, framkvæmdastjóri í síma 772-1870. Leikfélag...

Read More

Mýs og menn snýr aftur á svið í Borgarleikhúsinu

Meistaraverk John Steinbecks Mýs og menn snýr aftur á fjalir Stóra sviðsins næstkomandi föstudag, 18. október. Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á síðasta ári og fór rakleitt í hjartastað íslenskra leikhúsgesta. Hætta varð sýningum fyrir fullu húsi og verkið snýr því aftur nú í takmarkað tíma. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem flakka saman á milli vinnustaða, vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði. Þetta meistaravek John Steinbeck frá krepputímum þriðja áratugarins er löngu orðið sígilt. Hann varpar fram spurningum...

Read More

Hús Bernhörðu Alba frumsýnt í Gamla bíói

Föstudaginn 18. október kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Hús Bernhörðu Alba. Hús Bernhörðu Alba er eitt þekktasta verk Federico García Lorca. Það er samið skömmu fyrir borgarastyrjöldina á Spáni og lýsir átökum valds og frelsisþrár, menningar og náttúru, siðsemi og kynhvatar. Valið stendur um frelsið eða dauðann. Kristín Jóhannesdóttir stýrir hér frábærum hópi listamanna í uppsetningu sem er samtal nútímans við sögusvið Lorca. Jón Hallur Stefánsson þýðir verkið. Brynja Björnsdóttir hannar leikmynd og Þórunn María Jónsdóttir búninga. Hildur Ingveldardóttir semur tónlistina fyrir verkið sem flutt er af kvennakórnum Vox feminae undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Alls koma um 75 konur uppsetningu...

Read More

Saumur í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 19. október frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við unga nýja listamenn leikverkið Saumur eftir Anthony Neilson. Á hverju ári útskrifar Listaháskólinn hátt á þriðja tug sviðslistafólks. Þetta fólk slær okkur blíðlega utan undir, því fylgja nýjar hugmyndir og önnur viðhorf. Ef þetta fólk væri ekki til þá myndi leikhúsið deyja út. Við þurfum að hlúa að því. Borgarleikhúsið hefur í gegnum árin kappkostað við að fá vaxtarsprota inn í húsið, leikara, leikstjóra, höfunda og annað sviðslistafólk. Einn af þessum vaxtarsprotum er Ríkharður Hjartar Magnússon sem leikstýrir verkinu. Par í stormasömu sambandi neyðist til að ákveða hvort það sé tilbúið...

Read More

Emil í 50 ár!

Freyvangsleikhúsið í Eyjafirði æfir nú af kappi fjölskylduleikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Í ár eru 50 ár síðan fyrsta bókin kom út um Emil og strákapörin hans og m.a. í tilefni af því setur Freyvangsleikhúsið upp þessa sýningu. Þetta er mannmörg sýning með mörgum og skemmtilegum söngvum, fimm manna hljómsveit og 16 leikurum. Í hlutverki Emils er Sigurður Bogi Ólafsson 11 ára og Idu litlu systur hans leikur Steingerður Snorradóttir 8 ára. Þarna er um að ræða leikgerð sem ekki hefur verið sýnd áður hér á landi eftir Sören Dahl og Anders Baggesen, tónlistin er eftir Sören Dahl...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert