Author: lensherra

Borgarleikhúsið býður leikskólabörnum í heimsókn

Öllum börnum í leikskólum Reykjavíkur fæddum árið 2008 er boðið í Borgarleikhúsið í vikunni. Kynning á undraveröld leikhússins verður haldin á Stóra sviðinu kl 10.00 alla morgna frá mánudegi til fimmtudags. Nýstofnuð fræðsludeild leikhússins, með Ástrósu Elísdóttur í forsvari, stendur fyrir heimsóknunum. Hátt á annað þúsund fimm ára barna munu heimsækja Borgarleikhúsið í vikunni. Þau munu fá innsýn í starfsemi leikhúss og fylgjast með starfsmanninum Lalla, sem er upptekinn við að leita að flugdreka fyrir næstu sýningu á Mary Poppins, en tekur þeim opnum örmum og veitir þeim innsýn í störf leikhússins og undirbúning leiksýningar. Þá skjóta Skoppa og...

Read More

Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Stefaníusjóðs

Leikarinn Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur þetta árið. Stefanía Borg, formaður stjórnar minningarsjóðsins, og Þorsteinn Gunnarsson leikari og stjórarmeðlimur, sáu um að kynna og afhenda Jóhanni styrkinn og Stefaníustjakann við hátíðlega athöfn á Litla sviði Borgarleikhússins strax að lokinni síðustu sýningu verksins Rautt. Jóhann fer með aðalhlutverkið í Rautt og hlaut fyrir frammistöðu sína tilnefningu til Grímuverðlauna 2013 sem leikari ársins. Stjórn Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur samþykkti samhljóma að heiðra Jóhann í ár fyrir störf hans sem leikari. Minningarsjóður frú Stefaníu Guðmundsdóttur var stofnaður árið 1938 af hjónunum Önnu Borg og Poul Reumert og hefur því...

Read More

Hjartaspaðar snúa aftur

Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið sýna leikritið Hjartaspaða aftur nú í nóvember. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja Grímuverðlauna í júní sl. Aðeins verða 6 sýningar á verkinu að þessu sinni. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið er drepfyndin en ljúfsár kómedía sem fjallar um stórundarleg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki búið eftir áttrætt. Grímur og Hannes hafa verið félagar á dvalarheimilinu um nokkra hríð og...

Read More

Pollock? frumsýnt í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir Pollock? eftir Stephen Sachs í Kassanum þann 30. nóvember. Leikstjóri er Hilmir Snær Guðnason og með aðalhlutverk fara Pálmi Gestsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Þýðingu gerði Mikael Torfason. Pollock? Er glænýtt verk sem sýnt hefur verið við miklar vinsældir víðas vegar um Bandaríkin og hlaut Elliot Norton gagnrýnendaverðlaunin árið 2012. Verkið er byggt á sannsögulegum atburðum. Listaverkafundur aldarinnar í hjólhýsi? Í Pollock? segir frá Maude, fyrrum barþjóni sem býr í hjólhýsi umkringd munum sem hún hefur sankað að sér á flóamörkuðum. Meðal munanna er risastórt málverk sem hún keypti þrátt fyrir að hafa fundist það ljótt og...

Read More

Leikfélag Selfoss fumsýnir Maríusögur

Leikfélag Selfoss fumsýnir þann 25. október hinn gamansama harmleik Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson í Litla leikhúsinu við Sigtún. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir og eru leikarar fimm talsins. Eftir því sem við í stjórn leikfélagsins best vitum er þetta fyrsta leikritið eftir Þorvald sem sett er upp eftir andlát hans. Verkið var samið fyrir útskriftarhóp Leiklistaskóla Íslands 1995 og hefur ekki verið sett upp síðan, fyrr en nú. Leikritið gerist á (æsku)heimili hugulsömu húsmóðurinnar Stefaníu og Þráins, eiginmanns hennar. Tilefnið er fráfall föður Stefaníu. Marteinn bróðir hennar er þar mættur, eftir margra ára dvöl í Svíþjóð, og er alls ekki...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert