Author: lensherra

Jóreykur leiklesið í Tjarnarbíói

Leikritið Jóreykur í leikstjórn Þorsteins Bachmann verður leiklesið í Tjarnarbíó miðvikudaginn 20. nóvember. Leikarar eru Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Svandís Dóra Einarsdóttir, Þorbjörg Helga Dýrfjörð og Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi Jr.). Frítt er inn á leiklesturinn og aðgangur öllum opinn. Leiklesturinn hefst stundvíslega kl. 20 og tekur rúma klukkustund. Sjá einnig: http://www.joreykur.blogspot.com/ Um er að ræða nýtt íslenskt verk. Höfundur er Bergur Ebbi Benediktsson. Verkið fjallar um hestamanninn Hallgrím Björn Þórðarson (Steindi Jr.) sem er fyrsti íslenski gullverðlaunahafinn á ólympíuleikum, en við heimkomu hans til Íslands fer af stað atburðarás sem setur íslenska þjóðarvitund í nýtt (en þó kunnuglegt) samhengi. Þetta verður gaman – örugglega áhugavert –...

Read More

Jólahátíð Skoppu og Skrítlu

Laugardaginn 16. nóvember kl. 13 frumsýna Skoppa og Skrítla Jólahátíð sína. Í aðdraganda jóla halda Skoppa og Skrítla mikla hátíð til að bjóða sjálfan jólasveininn velkominn til byggða. Hann kemur til að aðstoða þær við að fagna hátíð ljóss og friðar og útbúa gjafir fyrir alla góðu vinina og vinkonurnar. Þegar undirbúningur hátíðarinnar stendur sem hæst banka óvæntir gestir upp á. Jólasveinninn er í stökustu vandræðum. Nú reynir á hversu úrræðagóðar Skoppa og Skrítla eru… Skoppa og Skrítla hafa verið í uppháhaldi hjá yngstu kynslóðinni um árabil, hvort sem er í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, tónlist eða leiksýningum. Þær hafa verið...

Read More

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Sá á fund sem finnur sig

Fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20 frumsýnir Stúdentaleikhúsið Sá á fund sem finnur sig, nýtt leikverk byggt á hugmynd leikstjórans Péturs Ármannssonar sem vinnur handritð með Jónasi Reyni Gunnarssyni. Sýnt er í Dansverkstæðinu, Skúlagötu 28, 101 Reykjavík (inngangur er við hliðina á Kex Hostel). Sýningartíminn er stuttur og því mikilvægt að tryggja sér miða sem fyrst. Í fyrsta sinn í íslensku leikhúsi er raunveruleikaþáttur þar sem keppendur þurfa að finna sjálfa sig settur upp á sviði! Í Sá á fund sem finnur sig keppa níu örvæntingarfullir þátttakendur. Áður en þættinum lýkur þurfa þeir að uppgötva drauma sína, sigrast á ótta...

Read More

Líf og fjör í Bæjarleikhúsinu

Sunnudaginn 17. nóvember frumsýnir Leikfélag Mosfellssveitar nýtt barnaleikrit eftir Agnesi Wild sem heitir Jólin hennar ömmu. Þetta er falleg jólasaga þar sem fjallað er um samband álfa og manna. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson. Frumsýning verður sunnudaginn 17. nóvember kl. 16 og verða sýningar á sunnudögum kl. 16 til jóla. Hægt er að panta miða í síma 566 7788 og miðaverð er 1500 krónur. Laugardaginn 30. nóvember verður svo haldið markaðs og skemmtikvöld í Bæjarleikhúsinu. Húsið opnar kl. 19.30 með fordrykk í boði LM. Síðan verður boðið upp á hina ýmsu sölu- og kynningarbása, tískusýningu og skemmtiatriði að hætti hússins....

Read More

Stóru börnin í Tjarnarbíói

Leikhóurinn Lab-Loki sýnir um þessar mundir Stóru börnin, sem er nýtt íslenskt leikverk eftir Lilju Sigurðardóttur. Verkið fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar og varpar fram þeirri spurningu hvort hægt sé að setja á hana verðmiða. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og með hlutverk fara Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein og Stefán Hallur Stefánsson. Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur fjallar á margræðan hátt um gildi ástarinnar. Þó verkið hafi nokkuð hefðbundna leikhús-umgjörð er umfjöllunarefnið nýstárlegt og varpar fram spurningum sem vel eiga heima í nútímanum. Er ástin einungis einhvers virði ef hún er ókeypis? Missir hún...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert