Author: lensherra

Allra síðustu sýningar á Hjartaspöðum

Nú um helgina sýna Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið síðustu tvær sýningarnar á hinu vinsæla verki Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja grímuverðlauna árið 2013. Sýningarnar eru laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. nóvember og hefjast kl. 20. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið er drepfyndin en ljúfsár kómedía sem fjallar um stórundarleg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki...

Read More

Sýningum líkur á Makalausri sambúð

Leikfélag Ölfuss sýnir nú síðustu sýningar á Makalausri sambúð eftir Neil Simon í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Síðustu sýningarnar verða föstudaginn 22. nóvember og  laugardaginn 23. nóvember og hefjast báðar kl. 20.  Sýnt er í Versölum (Ráðhúsi Ölfuss). Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem er ekki alveg jafn skipulögð. Þá eru spænsku bræðurnir Manolo og Jesus ekki til að bæta samskipti milli vinkvennanna. Miðasala er í síma 664-6454 og á Facebooksíðu Leikfélags Ölfuss. Miðasala hefst í Versölum...

Read More

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonuna

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonan eftir Óskar Guðmundsson í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi. Leikgerðin er unnin af leikstjóranum Jakobi S. Jónssyni og leikhópnum. Frumsýningin verður föstudaginn 22. nóvember kl. 20. Lífshlaup Guðnýjar Böðvarsdóttur frá Görðum á Akranesi, móður Snorra Sturlusonar, er um margar sakir merkilegt og hugmyndin að gera lífi hennar stutt skil í leikþætti kviknaði fyrir 2 árum.  Leikfélagið Skagaleikflokkurinn fékk þá Óskar Guðmundsson til að skrifa einþáttung um Guðnýju og Jakob S. Jónsson leikstjóri og leikhópur hafa verið að vinna leiksýninguna undanfarnar vikur og nú er hún tilbúin fyrir svið. Böðvar, faðir Guðnýjar var goðorðsmaður í Görðum...

Read More

Arnar Jónsson fær ekki að hætta

Bætt hefur verið við tveimur aukasýningum á Sveinsstykki, einleik Arnars Jónssonar í Þjóðleikhúsinu. Sýningarnar verða 5. og 15. desember. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Að sýningunni stendur Hið lifandi leikhús í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Þess má geta að Þjóðleikhúsið hefur raunar ekki alveg sleppt hendinni af Arnari Jónssyni, en hann mun stíga á svið í Eldrauninni eftir Arthur Miller eftir áramót. Með sýningunni Sveinsstykki kveður Arnar Þjóðleikhúsið formlega eftir 40 ára farsælan feril við leikhúsið, en hann fagnaði nýlega sjötugsafmæli. Áhorfendur eru þó ekki á því að leyfa Arnari að hætta að leika, og bæta hefur þurft við aukasýningum á...

Read More

Hundraðasta Mary Poppins sýningin í kvöld

Óhætt er að segja að leikhúsgestir hafi tekið Mary Poppins og Bert vini hennar fagnandi því í kvöld er komið að sýningu númer 100 og uppselt hefur verið á allar sýningar frá upphafi. Mary Poppins er þriðja sýning Leikfélags Reykjavíkur sem fer yfir 50.000 gesti í 117 ára sögu Leikfélagsins (hinar eru Fló á skinni og Sex í sveit). Þegar er búið að framlengja sýningarleyfinu að utan fyrir fyrir Mary Poppins, en það átti að renna út um áramót, og stefnir allt í að sýningin slái nýtt aðsóknarmet áður en yfir lýkur. Uppfærslan er sú viðamesta og flóknasta sem...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert