Author: lensherra

Átta nýir heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur

Aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur var haldinn fyrir skömmu. Á fundinum lét Inga Jóna Þórðardóttir af formennsku í félaginu, sem hún hefur gegnt í rúm níu ár. Í máli hennar kom fram að aðsókn hafi aldrei verið meiri en undanfarin ár og að síðasta rekstrarár hefði verið það stærsta í sögu félagsins, en þá fór veltan í fyrsta sinn yfir milljarð króna. Starfsmenn Borgarleikhússins eru að jafnaði 130 talsins. Rekstrarframlag borgarinnar nam um 45% af veltu og sjálfsaflafé 55%. Hærra hlutfall sjálfsaflafjár er vandfundið hjá menningarstofnunum, hvort sem er hér á landi eða í nálægum löndum. Afgangur varð af rekstri félagsins...

Read More

Táknmálstúlkun á Óvitum sunnudaginn 10. nóvember

Þjóðleikhúsið býður heyrnarlausum og heyrnarskertum á öllum aldri að njóta hinnar bráðskemmtilegu sýningar leikhússins á Óvitum eftir Guðrúnu Helgadóttur, með táknmálstúlkun. Næstkomandi sunnudag verður sérstök sýning með táknmálstúlkun á Óvitum, í samstarfi við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Sýningin hentar einnig öðrum áhorfendum, en táknmálstúlkunin fer þannig fram að tveir túlkar eru hvor sínu megin við sviðið og túlka sýninguna jafn óðum. Þjóðleikhúsið bauð nýlega upp á táknmálstúlkun á Dýrunum í Hálsaskógi, og nutu allir sýningarinnar ákaflega vel, jafnt heyrandi sem heyrnarskertir. Óvitar hafa fengið afar góðar viðtökur, en í þessu verki er hlutunum snúið á hvolf, börnin fæðast stór...

Read More

Refurinn frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 16. nóvember verður frumsýning á verkinu Refurinn eftir Dawn King á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið sem gerði Dawn King að stjörnu í bresku leikhúslífi er leikstýrt af Vigni Rafn Valþórssyni og er þetta fyrsta leikstjórnarverkefni hans við Borgarleikhúsið en hann hefur getið sér gott orð fyrir sýningarnar Munaðarlaus og Lúkas. Þýðinguna gerði Jón Atli Jónasson. Samúel og Júlía eru ung hjón sem búa á hrörlegu sveitabýli. Uppskerubrestur ógnar lífsviðurværi þeirra, þau hafa orðið fyrir sárum missi og það ætlar aldrei að hætta að rigna. Kvöld eitt knýr dyra ungur maður, sendur af yfirvöldum vegna gruns um að býli...

Read More

Jólanótt Viktoríu – Jólasýning Borgarbarna

Borgarbörn setja um nú upp jólasýningu áttunda árið í röð. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir, söngstjóri er Rebekka Sif Stefánsdóttir og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir. Leikarar eru átján talsins, allir á aldrinum 11-15 ára. Sýnt er í Iðnó, frumsýning er 29. nóvember og er sýnt fram að jólum. Sýningin fjallar um óstýriláta, heimtufreka stúlku, Viktoríu að nafni, sem búin er að tapa sér í græðgi í veraldlega hluti. Viktoríu er lítið sinnt af föðurnum Merði sem telur mikilvægara að græða peninga en að sinna dóttur sinni. Fóstran Fjóla sér svo til alfarið um stúlkuna og reynir...

Read More

Frumsýning á Sveinsstykki á stóra sviði Þjóðleikhússins

Þann 10. nóvember mun Arnar Jónsson frumsýna einleikinn Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson á stóra sviði Þjóðleikhússins. Verkið er sett upp á þeim tímamótum sem Arnar kveður Þjóðleikhúsið eftir langan og farsælan feril við húsið en Arnar varð nýlega sjötugur. Með sýningunni vill Þjóðleikhúsið einnig heiðra minningu Þorvalds Þorsteinssonar sem lést á árinu, langt fyrir aldur fram. Leikstjóri verksins er Þórhildur Þorleifsdóttir. Hér tekst Þórhildur á við þá áskorun að leikstýra eiginmanni sínum á kveðjusýningu hans í Þjóðleikhúsinu. Sveinsstykki fjallar um reglumanninn, íslenskumanninnn og lagerstarfsmanninn Svein Kristinsson sem á bæði stórafmæli og starfsafmæli og fagnar þessum tímamótum með því að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert