Jeppi á Fjalli flytur í stærra húsnæði
Jeppi á Fjalli hefur notið mikilla vinsælda á Nýja sviði Borgarleikhússins. Þegar er búið að selja yfir 50 uppseldar sýningar á verkinu. Fyrirhugað var að ljúka sýningum fyrir jól en til að bregðast við hinni miklu eftirspurn hefur verið ákveðið að framlengja sýningartímabil út janúar og samhliða því að færa sýninguna á stærra svið. Sýningin mun flytjast í Gamla bíó sem tekur um 450 manns í sæti. Ekki verður mögulegt að halda lengur áfram vegna anna Ingvars E. Sigurðssonar sem hefur verið bókaður í annað verkefni í febrúar. Jeppi á Fjalli var frumsýnt 4.október síðastliðinn á Nýja sviði Borgarleikhússins....
Read More


