Author: lensherra

Kemurrr’á deit?

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýnir nýtt frumsamið leikverk, sunnudaginn 24. nóv. kl. 20.00. Verkið ber heitið Kemurr’á deit? og var það samið og unnið í hópvinnu undir stjórn leikstjórans Ástbjargar Rutar Jónsdóttur. Unglingadeild LK hefur komið víða við á undanförnum árum og grandskoðað ýmislegtí mannlífinu og utan þess svo sem blóðsugur, Facebook, líf unglingsins og fleira. Nú er komið að ástinni sem hópurinn skoðar með sínum sérsmíðuðu gleraugum.  Hægt er að kaupa miða á Miðakaup og kostar stykkið heilar 500 krónur. Einnig er hægt að senda inn pöntun á...

Read More

Hugleikur sýnir Mér er hafið Hugleikið

Næstkomandi laugardag frumsýnir Leikfélagið Hugleikur stuttverkadagskrá sem hlotið hefur nafnið Mér er hafið Hugleikið. Höfundar leikfélagsins hafa leitað til hafsins eftir innblæstri og afraksturinn er fjögur leikverk þar sem söngur, seiður, ilmur og hættur hafsins eru í forgrunni. Alls verða sýndar tvær sýningar, 23. og 24. nóvember kl. 20 í leikhúsinu að Eyjarslóð 9. Aðgangseyrir er 1000 kr. en ókeypis fyrir félaga sem greitt hafa félagsgjöld svo og börn 12 ára og yngri. Ekki þarf að panta miða. Verkin sem um ræðir: FnykurLeikstjóri: Unnur GuttormsdóttirHöfundur: Ásta GísladóttirLeikarar: Fríða Bonnie Andersen og Rúnar Lund- Ilmræn atferlismeðferð ekki fyrir byrjendur HappasteinnLeikstjóri:...

Read More

Allra síðustu sýningar á Hjartaspöðum

Nú um helgina sýna Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið síðustu tvær sýningarnar á hinu vinsæla verki Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningin hlaut lofsamlega dóma og var tilnefnd til tveggja grímuverðlauna árið 2013. Sýningarnar eru laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. nóvember og hefjast kl. 20. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið er drepfyndin en ljúfsár kómedía sem fjallar um stórundarleg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki...

Read More

Sýningum líkur á Makalausri sambúð

Leikfélag Ölfuss sýnir nú síðustu sýningar á Makalausri sambúð eftir Neil Simon í leikstjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Síðustu sýningarnar verða föstudaginn 22. nóvember og  laugardaginn 23. nóvember og hefjast báðar kl. 20.  Sýnt er í Versölum (Ráðhúsi Ölfuss). Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem er ekki alveg jafn skipulögð. Þá eru spænsku bræðurnir Manolo og Jesus ekki til að bæta samskipti milli vinkvennanna. Miðasala er í síma 664-6454 og á Facebooksíðu Leikfélags Ölfuss. Miðasala hefst í Versölum...

Read More

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonuna

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýnir Sagnakonan eftir Óskar Guðmundsson í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi. Leikgerðin er unnin af leikstjóranum Jakobi S. Jónssyni og leikhópnum. Frumsýningin verður föstudaginn 22. nóvember kl. 20. Lífshlaup Guðnýjar Böðvarsdóttur frá Görðum á Akranesi, móður Snorra Sturlusonar, er um margar sakir merkilegt og hugmyndin að gera lífi hennar stutt skil í leikþætti kviknaði fyrir 2 árum.  Leikfélagið Skagaleikflokkurinn fékk þá Óskar Guðmundsson til að skrifa einþáttung um Guðnýju og Jakob S. Jónsson leikstjóri og leikhópur hafa verið að vinna leiksýninguna undanfarnar vikur og nú er hún tilbúin fyrir svið. Böðvar, faðir Guðnýjar var goðorðsmaður í Görðum...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert