Umf. Reykdæla frumsýnir á föstudaginn
Undanfarnar vikur hafa félagar í Umf. Reykdæla í Borgarfirði æft revíuna Ert´ekk´að djóka (elskan mín)? eftir Bjartmar Hannesson kúabónda og söngvaskáld frá Norðurreykjum í Hálsasveit. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Revían gerist að miklu leyti á ferðaþjónustubænum Efri-Bæ, þar sem sjaldnast er einhver lognmolla. Einnig er litið við í fjósinu á Neðri-Bæ þar sem eftirlitsmaður frá þannig eftirlitsstofnun kemur og lítur á svæðið. Í revíunni er farið vel í gegnum ævafornar asískar aðferðir til eflingar andlegs þroska og til styrktar huga og líkama. Franskur kokkur kennir pottþétta aðferð til að útbúa rauðvínssósu „bara nógu mikið rauðvín“. Fornleifagröfur í Reykholti, rauðir...
Read More


