Author: lensherra

Fullkomið brúðkaup á Dalvík

Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur orðið að hætta við fyrirhugaða uppsetningu á leikritinu Þið munið hann Jörund, hjá Leikfélagi Dalvíkur. Kristján Guðmundsson formaður LD, segir að ýmsir þættir hafi spilað þar inní sem ekki verð raktir nánar hér. Kristján segist vonast til að hægt verði að setja verkið upp í nánustu framtíð. Þess í stað eru hafnar æfingar á farsanum Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon, sem Örn Árnason þýddi og er verkið í leikstjórn Aðalsteins Bergdal. Sex leikarar koma fram í sýningunni og er frumsýning áætluð í byrjun apríl. Kristján segir að hér sé um drepfyndinn og rómantískan gamanleik að...

Read More

Frítt fyrir börnin

Í tilefni af vetrarfríi í Reykjavík hefur Íslenski Dansflokkurinn ákveðið að bjóða börnum yngri en 13 ára frítt í fylgd fullorðna á sýninguna Þríleik á Stóra sviði Borgarleikhússins sunnudaginn 23.febrúar kl 20. Þríleikur samanstendur af dansverkunum Tilbrigði, FARANGUR og Berserkir. TilbrigðiBryndís Halla Gylfadóttir leikur tónverk finnska tónskáldsins Jean Sibelius Theme and variations for Solo Cello frá 1887. Eindansinn er eftir Láru Stefánsdóttur. F A R A N G U RF A R A N G U R er nýtt íslenskt dansverk eftir Grímuverðlaunahafann Valgerði Rúnarsdóttur en innblástur að sköpunarferlinu er sóttur í minnið og stöðuga mótun þess. BerserkirBerserkir er eftir...

Read More

Anna á Stóru-Borg í fyrsta sinn á fjalirnar

Leikfélag Austur-Eyfellinga sýnir frumsamda leikgerð eftir skáldsögu Jóns Trausta um Austur-Eyfellinginn Önnu Vigfúsdóttur í Stóru-Borg. Margrét Tryggvadóttir leikskólakennari á Hvolsvelli skrifar leikgerðina og leikstjóri er Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Þátttakendur eru á þriðja tug. Sýningar verða í félagsheimilinu Heimalandi undir fjöllunum. Frumsýning er fyrirhuguð í byrjun apríl. Með titilhlutverkið fer Þórunn Ólafsdóttir og bróður hennar, Pál Vigfússon lögmann á Hlíðarenda, leikur Bjarni Böðvarsson. Anna Vigfúsdóttir var fædd í byrjun 16. aldar og dó árið 1571. Hún var hefðarkona en þekktust fyrir samband sitt við alþýðupiltinn Hjalta Magnússon og langvarandi stríð við lögmanninn bróður sinn af þeim sökum. Siðaskiptin koma þar...

Read More

Höfundasmiðja og leiklistarnámskeið

Í byrjun mars þá mun Leikfélag Hafnarfjarðar verða með Höfundasmiðju, þar sem áhersla verður lögð á ritun styttri leikverka. Tveimur vikum seinna munu síðan hefjast æfingar á stuttverkadagskrá þar sem afrakstur þessarar höfundasmiðju verður settur á svið í Gaflaraleikhúsinu. Þann 3. mars hefst námskeið í leiklist hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar. Námskeið þetta er ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynsluaf leiklist en brennandi áhuga á að reyna fyrir sér á sviði. Athugið að námskeiðið er ætlað fullorðnum, 18 ára og eldri. Námskeiðið stendur í tvær vikur og er kvöldnámskeið.     Þeir sem áhuga hafa á að vera með...

Read More

Dansaðu fyrir mig í Tjarnarbíói

Dansaðu fyrir mig, dansverk eftir Brogan Davison og Pétur Ármannsson, frumsýnt í Tjarnarbíó fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00. Verkið hefur áður verið sýnt í Hofi á Akureyri fyrir fullu húsi og á leiklistarhátíðinni Lókal í ágúst á síðasta ári, en nú í febrúar og mars fá höfuðborgarbúar tækifæri til að sjá sýninguna. Uppselt er á fyrstu tvær sýningarnar, 20. og 23. febrúar, en næstu tvær sýningarnar verða 1. og 2. mars. Það er því vissara að hafa hraðar hendur og missa ekki af þessu frábæra dansverki, en það hefur hlotið mikið lof þar sem það hefur verið sýnt. Sýningunni...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert