Author: lensherra

Nýjar og spennandi vörur hjá Bandalaginu

Vorum að taka upp sendingu frá hinu virta leikhúsförðunarmerki Kryolan í Þýskalandi. Mikið úrval af Supracolor kremfarða, ný og flott handhnýtt hökuskegg, ný tegund af vaxi í þremur stærðum, ný tegund af gerfiblóði, Artex tveggja þátta silikonefni fyrir þrívíddar gerfi, verkfæri og fleira. Opið að Kleppsmýrarvegi 8 alla virka daga frá kl. 9.00-13.00. Meðal þess sem við vorum að taka upp er: 12 lita Supracolor litapalettur í nokkrum litasamsetningum, kr. 6.800 6 lita Supracolor litahjól, margar samsetningar, kr. 2.5006 lita Hyljarahjól, nokkrar litasamsetningar, kr. 5.7008 lita UV Dayglow litabox, litir fyrir blacklight, kr. 10.500Cine-Wax í þremur stærðum frá 10-110...

Read More

Aladdín aftur á Brúðuloftinu

Næstkomandi laugardag, 22. mars mætir Aladdín aftur galvaskur ásamt Salímu vinkonu sinni og fleiri furðufuglum á Brúðuloftið í Þjóðleikhúsinu til að skemmta fólki frá 5 ára upp í 105 ára. Hætta þurfti sýningum fyrir jól fyrir fullu húsi og nú fá þeir sem misstu af sýningunni í haust tækifæri til að berja þennan undraheim augum. Sýningin um Aladdín hefur hlotið frábæra dóma leiklistargagnrýnenda og góðar viðtökur áhorfenda. Bernd Ogrodnik brúðulistamaður er nýkominn heim úr langri sýningarferð og hefur nú aftur tækifæri til að sýna Aladdín í nokkur skipti áður en haldið verður á ný út í hinn stóra heim....

Read More

Frábær kvöldskemmtun í Lyngbrekku

Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi söng- og gamanleikinn Stöngin inn í Lyngbrekku föstudaginn 14. mars sl. við gríðargóðar undirtektir áhorfenda sem fylltu salinn og skemmtu sér konunglega.Stöngin inn er bráðskemmtilegt nýtt verk eftir Guðmund Ólafsson leikara. Stöngin inn var frumsýnd í fyrsta sinn fyrir ári hjá sameiginlegu leikfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og hlaut á síðasta ári verðlaun sem athyglisverðasta leiksýning áhugaleikfélaganna og var í kjölfarið sýnt i Þjóðleikhúsinu. „Leikritið vísar í forngríska gamanleikinn Lýsiströtu þar sem konurnar reyna að fá karlana til að láta af stríðsrekstri með því að setja þá í kynlífsbann, en hér eru það konurnar í litlu...

Read More

Pörupiltar á kafi í kynlífi

Sunnudaginn 23. mars hefja Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið almennar kvöldsýningar á Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú sýning út fyrir landsteinana. Nú eru þeir strákarnir komnir í kynlífið og ætla að fræða unglinga og fullorðna. Öllum 10. bekkingum í Reykjavík var boðið á sýninguna í febrúar og voru viðtökurnar vonum framar. Sagan Strákarnir Dóri Maack, Nonni Bö & Hermann Gunnarsson hafa lengi verið á atvinnuleysisbótum en þeir kynntust á sjálfstyrkingarnámskeiði hjá Vinnumálastofnun. Núna eiga þeir á hættu...

Read More

Aukasýningar á Stóru börnunum

Leiksýningin Stóru börnin, eftir Lilju Sigurðardóttur, sem frumsýnt var 2. nóvember síðastliðinn og naut gríðarlega vinsælda gagnrýnenda sem áhorfenda, snýr aftur í Tjarnarbíó í mars vegna mikillar eftirspurnar. Fjórum aukasýningum hefur verið bætt við, nánar tiltekið 20., 21., 22. og 23. mars. Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda og var meðal annars valin leiksýning haustsins af Símoni Birgissyni í Djöflaeyjunni. Þá gaf Jón Viðar Jónsson sýningunni fjórar stjörnur og valdi Rúnar Guðbrandsson leikstjóra ársins. Tjarnarbíó vekur einnig athygli á því að miðakaupendur geta valið sér sæti á sýninguna. Því er betra að hafa hraðan á og ná sér í gott...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert