Opnunarhátíð nýs Tjarnarbíós
29. mars næstkomandi heldur Tjarnarbíó, í samvinnu við Vinnsluna, glæsilega opnunarhátíð, þar sem listamenn munu sýna verk í hverju rými hússins, en þetta gamla leikhús leynir sko á sér! Hátíðin hefst kl. 19.00 en húsið opnar kl. 18.30. Tjarnarbíó er ekki bara lítið leikhús við Tjörnina, heldur lifandi vettvangur sköpunar og miðstöð allra listforma, þar sem listir eru iðkaðar í hverju rými hússins, hvort sem það er stóri salurinn, tækniherbergið, kaffihúsið eða þröngir ranghalar þessa gamla húss. Hér blandast tónar, litir, leikur og myndir. Sköpunin ræður ríkjum. Á síðustu vikum og mánuðum hefur stefna og starfsemi Tjarnarbíós verið skoðuð...
Read More


