Author: lensherra

Líf mitt í kassanum, frumsýning föstudag

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir nýtt íslenskt gamanleikrit sem nefnist Líf mitt í kassanum föstudaginn 21. mars klukkan 20:00. Leikstjóri verksins er Jóel Sæmundsson og höfundur er Hrafnkell Stefánsson, sem meðal annars er handritshöfundur bíómyndanna Kurteist fólk og Borgríki 1 og 2.  Leikfélagið hefur áður sýnt verk eftir þennan höfund en það var gamanleikritið Í beinni árið 2006. Aðalpersóna leikritsins er Nonni sem býr með fyrrverandi kærustu sinni og ungum Frakka. Verkið fjallar um samlíf og samskipti þeirra vina. Þegar fer að halla undan hjá Nonna veit hann ekki alveg hvað er í gangi eða hvernig hann eigi að bregðast við...

Read More

Alþjóðlegur leikhúsdagur barna 20.3. 2014

Alþjóðlegur leikhúsdagur barna er í dag. Markmiðið með deginum er að kynna börn fyrir leikhúsinu og vekja þá fullorðnu til umhugsunar um að gera gott leikhús fyrir börn. Yfirskrift dagsins er „Förum með börnin í leikhús svo þau sjái, heyri, finni, hugsi og noti ímyndunaraflið“. Alþjóðleigu barnalaikhússamtökin birta tvö erindi sérstaklega skrifuð í tilefni dagsins á heimasíðu samtakanna http://www.assitej-international.org/...

Read More

Ferjan frumsýnd á föstudaginn

Föstudaginn 21. mars frumsýnir Borgarleikhúsið Ferjuna á Litla sviðinu, glænýtt íslenskt verk eftir einn ástsælasta höfund þjóðarinnar Kristínu Marju Baldursdóttur. Verkið fjallar um fimm íslenskar konur og þrjá karla sem stödd eru erlendis og neyðast til að sigla saman heim til Íslands í ryðguðum dalli. Þá hefst baráttan fyrir því að finna leiðina heim, hið ytra sem innra – að finna sjálf sig og komast á leiðarenda. Sagan: Fimm íslenskar konur og þrír karlar eru stödd erlendis. Allt þetta fólk á brýnt erindi til Íslands en þar sem flugsamgöngur liggja niðri sökum eldgoss neyðast þau til að sigla heim...

Read More

Nýjar og spennandi vörur hjá Bandalaginu

Vorum að taka upp sendingu frá hinu virta leikhúsförðunarmerki Kryolan í Þýskalandi. Mikið úrval af Supracolor kremfarða, ný og flott handhnýtt hökuskegg, ný tegund af vaxi í þremur stærðum, ný tegund af gerfiblóði, Artex tveggja þátta silikonefni fyrir þrívíddar gerfi, verkfæri og fleira. Opið að Kleppsmýrarvegi 8 alla virka daga frá kl. 9.00-13.00. Meðal þess sem við vorum að taka upp er: 12 lita Supracolor litapalettur í nokkrum litasamsetningum, kr. 6.800 6 lita Supracolor litahjól, margar samsetningar, kr. 2.5006 lita Hyljarahjól, nokkrar litasamsetningar, kr. 5.7008 lita UV Dayglow litabox, litir fyrir blacklight, kr. 10.500Cine-Wax í þremur stærðum frá 10-110...

Read More

Aladdín aftur á Brúðuloftinu

Næstkomandi laugardag, 22. mars mætir Aladdín aftur galvaskur ásamt Salímu vinkonu sinni og fleiri furðufuglum á Brúðuloftið í Þjóðleikhúsinu til að skemmta fólki frá 5 ára upp í 105 ára. Hætta þurfti sýningum fyrir jól fyrir fullu húsi og nú fá þeir sem misstu af sýningunni í haust tækifæri til að berja þennan undraheim augum. Sýningin um Aladdín hefur hlotið frábæra dóma leiklistargagnrýnenda og góðar viðtökur áhorfenda. Bernd Ogrodnik brúðulistamaður er nýkominn heim úr langri sýningarferð og hefur nú aftur tækifæri til að sýna Aladdín í nokkur skipti áður en haldið verður á ný út í hinn stóra heim....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert