Strákskrattinn snýr aftur!
Orkuboltinn hann Emil Svenson situr aldrei lengi kyrr og er kominn aftur og verður í fullu fjöri í Freyvangi um páskana. Þar sem sþýningum var hætt í janúar fyrir fullu húsi var ákveðið að taka sýninguna upp aftur og sýna 5 sinnum dagana 16., 17. og 19. apríl. Svo ef þið sáuð ekki Emil í Kattholti í vetur, þá fáið þið nú annað tækifæri! Þetta er mannmörg sýning með mörgum og skemmtilegum söngvum, fimm manna hljómsveit og 16 leikurum. Í hlutverki Emils er Sigurður Bogi Ólafsson 11 ára og Idu litlu systur hans leikur Steingerður Snorradóttir 8 ára. Þarna...
Read More


