Spegilbrot í Tjarnarbíói
Sviðslistahópurinn Spegilbrot býður leikhúsgestum í ferðalag um króka og kima Tjarnarbíós í sýningunni Spegilbrot, sem frumsýnd verður 16. apríl. Hér er á ferðinni óhefðbundið upplifunarleikhús þar sem ólíkum listformum, svo sem leiklist, myndlist, tónlist, vídjólist og gjörningalist, er blandað saman. Gestir upplifa leikhústöfra jafnt á stóra sviði Tjarnarbíós, í stigagöngum þess sem og í óvæntum rýmum. Viðfangsefni sýningarinnar eru speglar og sjálfið. Litið er inn í hugarheima ólíkra einstaklinga og eru speglar skoðaðir í öllum sínum birtingarmyndum. Speglar hafa áhrif á nánast allar hliðar okkar daglega lífs, allt frá mótun sjálfsmyndar okkar og miðlun hennar gegnum samskiptamiðla Internetsins yfir...
Read More


