Rjúkandi ráð frumsýnt á Sauðárkróki
Í gærkvöldi, sunnudaginn 27. apríl, var leikritið Rjúkandi ráð frumsýnt hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Verkið var áður sýnt á Sauðárkróki fyrir 27 árum, en Leikfélag Sauðárkróks sýndi fyrst verk eftir þá Jónas Árnason og Stefán Jónsson, með þekktum söngdönsum Jóns Múla Árnasonar árið 1969 og var það Allra meina bót. Næst var Delerium Búbónis sýnt árið 1983. Á árunum 1987-1990 sýndi félagið fjögur verk eftir þá bræður, Rjúkandi ráð, Okkar maður, Allra meina bót og Í sal hans hátignar, sem var samantekt í leikgerð Sigurgeirs Scheving og frumflutt af félaginu. Sigurgeir leikstýrði þessum fjórum uppsetningum. 24 árum seinna sýnir félagið...
Read More


